Drukku orkudrykk og enduðu á spítala 10. nóvember 2011 09:00 Orkudrykkurinn Koffínmagnið er um 300 milligrömm í einum lítra. Aftan á umbúðum er ráðlagt að börn og barnshafandi konur neyti ekki drykkjarins.
Læknir á bráðamóttöku segir færast í aukana að krakkar endi á spítala eftir að hafa drukkið mikið magn orkudrykkja. fréttablaðið/stefán Tveir unglingsdrengir hafa verið lagðir inn á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins á síðustu dögum eftir að hafa drukkið orkudrykki. Sextán ára drengur, Tryggvi Þór Pétursson, var sendur með sjúkrabíl á bráðamóttökuna á þriðjudaginn eftir að hafa drukkið nær einn lítra af orkudrykknum Red Rooster. Hann fór heim samdægurs. Annar drengur kom á spítalann í síðustu viku og þurfti að dvelja þar yfir nótt sökum hjartsláttartruflana. Red Rooster fæst meðal annars í lítraumbúðum í verslunum Samkaupa, sem eru innflytjandi vörunnar, og kostar 199 krónur. Tryggvi Þór drakk nær einn lítra af drykknum, sem hann keypti sér í Samkaupum við Stigahlíð. Fljótlega fór hann að finna fyrir auknum hjartslætti og hjartsláttartruflunum, ofvirknieinkennum eins og ósjálfráðum hlátri, miklum skjálfta og svima og átti erfitt með andardrátt. Var hann því fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl, þar sem fylgst var með honum þar til blóðþrýstingurinn var kominn í eðlilegt horf. Móðir drengsins, Regína Hallgrímsdóttir, er lyfjafræðingur og segir hún merkingum á umbúðum orkudrykkja verulega ábótavant. Aðvaranir séu einungis aftan á flöskum eða dósum, og allar á ensku eða öðru norrænu tungumáli en íslensku. Hún tilkynnti atvikið til Matvælastofnunar og Heilbrigðiseftirlitsins og krafðist þess að Red Rooster yrði tekinn úr sölu. Benedikt Kristjánsson, framleiðslustjóri Samkaupa, kallaði til heilbrigðisfulltrúa frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja í gær og fóru þeir yfir merkingar á umbúðum drykkjanna. Niðurstaðan var að öllum lögum um merkingar væri fylgt og því var ákveðið að aðhafast ekkert frekar. „Þetta er allt fullkomlega löglegt af okkar hálfu," segir Benedikt. „Að einhver sé fluttur á sjúkrahús eftir að hafa drukkið svona drykk er eitthvað annað en upplýsingaskortur á vörunni." Vakthafandi læknir á bráðamóttöku spítalans segir tilvikum sem þessum fara fjölgandi. Í síðustu viku kom sautján ára drengur á bráðadeild Barnaspítalans með mun alvarlegri einkenni en Tryggvi Þór. Hann hafði drukkið mjög mikið magn af orkudrykkjum. Breytingar sáust í hjartalínuriti þess drengs og var því ákveðið að halda honum yfir nótt. Hann var ekki með neina undirliggjandi sjúkdóma. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Fleiri fréttir Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Sjá meira