Stjórnarflokkarnir deila um gangagerð 10. nóvember 2011 07:00 Fjáraukalög verða til umræðu á þingi í dag. Stjórnarþingmenn hafa undanfarið deilt um fjárheimild vegna Vaðlaheiðarganga.
Fresta þurfti fundi fjárlaganefndar í gær vegna andstöðu fulltrúa Samfylkingarinnar við fjárheimild vegna Vaðlaheiðarganga. Málið var tekið fyrir á þingflokksfundi flokksins í gær og loks náðist sátt um það seinnipartinn. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar verulega ósáttir við heimildina til ráðherra. Þeir bera brigður á forsendur Vaðlaheiðarganga ehf. um hagkvæmni ganganna. Vilji er til þess að óháðir aðilar fari yfir forsendurnar og meti framkvæmdina upp á nýtt. Það er í takt við afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar sem samþykkti á fundi sínum í gær að fela Ríkisendurskoðun að fara yfir forsendur gangagerðarinnar. Ekki náðist sátt um slíka málsmeðferð innan fjárlaganefndar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var málið komið í harðan hnút og um hríð var einfaldlega neitað að afgreiða fjáraukalagafrumvarpið fyrr en afdrif heimildarinnar kæmust á hreint. Þrátt fyrir langan fund um málið á þriðjudag þurfti að fresta fundi nefndarinnar í gær til að ná fram niðurstöðu. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, lofsamaði samþykkt umhverfis- og samgöngunefndar á þingi í gær. Hún sagðist ekki skilja að nokkur setti sig á móti því að fá óháðan aðila til að meta framkvæmdina og grundvöll hennar. Framkvæmdin væri afar dýr og mikilvægt að standa rétt að málum. Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að fjármálaráðherra verði veitt heimild til að lána allt að einum milljarði króna til Vaðlaheiðarganga ehf. Sú forsenda að framkvæmdin standi undir sér að öllu leyti er enn óbreytt. Meirihlutinn leggur hins vegar áherslu á að áður en stofnað er til skuldbindinga ríkisins komi málið aftur til fjárlaganefndar og verði kynnt henni með fullnægjandi hætti. Einar K. Guðfinnsson, varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, og Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, kvörtuðu á þingi í gær yfir meðferð málsins. Það hve seint fjárlaganefnd afgreiddi fjáraukafrumvarpið gerði það að verkum að þingmönnum gæfist knappur tími til að kynna sér það fyrir umræðuna sem hefst á Alþingi í dag. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Fleiri fréttir Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Sjá meira