Gefa út nýja veftímaritið Bast Magazine 12. apríl 2011 20:00 Hafrún Alda, Sif og Íris Dögg standa á bak við vefritið Bast Magazine. Mynd/Íris Dögg
Nýtt vefrit, Bast Magazine, fór í loftið um helgina. Á bak við ritið standa Hafrún Alda Karlsdóttir, Íris Dögg Einarsdóttir og Sif Kröyer. Að sögn Sifjar, ritstjóra vefritsins, höfðu allar stúlkurnar gengið með þessa hugmynd í maganum í nokkra stund en hjólin fóru fyrst að snúast þegar þær hlutu peningastyrk frá Dansk Islandsk Fond. „Styrkurinn gerði það að verkum að við gátum leigt atvinnuhúsnæði og komið undir okkur fótunum. Þetta gerði það einnig að verkum að við fengum aukið sjálfstraust því styrkveitingin sýndi að fleiri höfðu trú á þessu verkefni með okkur,“ útskýrir hún. Meðal þess efnis sem fjallað verður um í Bast Magazine er tíska, tónlist, menning, hönnun og kvikmyndir og verður megináhersla lögð á viðburði sem fram fara á Íslandi og í Danmörku. Auk þess að gefa út vefritið annan hvern mánuð munu stúlkurnar halda úti bloggi og birta vídeóklippur á Bast-TV. Sif segir mikla vinnu liggja að baki fyrstu útgáfunni og hlakkar mikið til að sjá viðbrögð fólks. „Við erum allar í námi og með fjölskyldur þannig að það liggur mikil en skemmtileg vinna að baki þessu. Við höfum þó verið svo heppnar að fá utanaðkomandi aðstoð með skrifin og fólk hefur almennt verið mjög hjálpsamt,“ segir Sif og þvertekur fyrir að þær muni slá slöku við eftir útgáfu fyrsta tölublaðs. „Vinnan heldur áfram. Við erum ekkert að fara að skála í kokteilum og slappa af heldur erum strax farnar að vinna efni í næsta tölublað.“ Hægt er að nálgast fyrsta tölublað Bast Magazine á slóðinni bast-magazine.com. - sm
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira