Vesturport á vöktum í Pétursborg 12. apríl 2011 18:00 Gísli og félagar sýna Hamskiptin og Fást á aðeins þremur dögum í sama leikhúsinu. Fréttablaðið/valli „
Þetta er náttúrulega bara bilun," segir Gísli Örn Garðarsson, einn af forsvarsmönnum leiklistarhópsins Vesturport. Yfir fimmtíu manna hópur frá Vesturporti og Borgarleikhúsinu flaug til St. Pétursborgar í gær en þar mun afhending evrópsku leiklistarverðlaunanna fara fram 17. apríl. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hlýtur Vesturport þennan mikla heiður en þarf, réttara sagt neyðist, af þeim sökum að setja upp tvær sýningar; annars vegar Hamskiptin og hins vegar Fást. Hamskiptin er tiltölulega einföld sýning miðað við Fást því sú síðarnefnda krefst gríðarlegs undirbúnings hjá sviðslistarfólki, strengja þarf net yfir allan salinn og það er ekki sama hvernig það er gert, öll öryggisatriði þurfa að vera í lagi. „Verkin verða svo bara sýnd einu sinni, síðan er sviðsmyndin tekin niður. Og það er ekkert selt inn á þessar sýningar heldur eru þær bara í boði fyrir fjölmiðla og fólk í bransanum; þetta er bara svona „showcase"," útskýrir Gísli en bætir því við að þau séu öll afar spennt og hlakki mikið til. En þessi törn og stutti tími milli sýninga þýðir að menn verða að vinna á vöktum allan sólarhringinn á meðan á havaríinu stendur. „Hamskiptin eru sýnd 13. apríl og Fást 15. apríl þannig að við verðum að láta hendur standa fram úr ermum og nýta allan tímann vel."- fgg
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira