Danir hrifnir af Ofsa Einars Kára 5. febrúar 2011 10:00 Einar Kárason fær lofsamlega dóma fyrir Ofsa í Weekendavisen í Danmörku. Danir hafa ekki alltaf verið hrifnir af Einari og skömmuðu sumir hann fyrir Storm. Þeim fannst hann gera grín að dönsku velferðarkerfi. Fréttablaðið/GVA
Einar Kárason fær lofsamlega dóma í Weekendavisen í Danmörku fyrir bók sína Ofsa. Víkingar fornaldar þjáðust víst af aðskilnaðarkvíða og ástleysi. „Þetta er mjög skemmtilegt og hann sér alls konar hluti sem mér hafði ekki dottið í hug, eins og að það hafi verið eitthvað freudískt við það að skríða ofan í sýrukar og vera bjargað af konu,“ segir Einar Kárason rithöfundur. Hann er áberandi í menningarkálfi danska helgarblaðsins Weekendavisen sem kom út í gær. Inni í kálfinum var nokkuð ítarlegt viðtal við skáldið þar sem Einar fer yfir farinn veg en á forsíðunni er hins vegar lofsamlegur dómur um bókina eftir Iben Tandgaard. Einar segir að Danir hafi ekki alltaf verið hrifnir af bókum hans, sumir hafi gefið lítið fyrir Storm og fundist hann vera að gera grín að dönsku velferðarkerfi. Rithöfundurinn er hins vegar hrifinn af dóminum hjá Tandgaard. „Það er ekki oft sem dómar veita manni innblástur en þessi gerir það.“ Skáldið hyggst heimsækja Dani í apríl og lesa upp úr bókinni en hún er einnig að koma út í Þýskalandi. „Þetta er sjöunda bókin mín sem kemur þar út, Þjóðverjar hafa alltaf sýnt mér mikla tryggð.“ En aftur að dómnum. Tandgaard hrósar Einari fyrir nálgun hans á Sturlungaöld og hvernig honum tekst að lýsa hugarheimi fólks þess tíma. Tandgaard kemst að þeirri niðurstöðu að sennilega hafi margir hinna hugrökku kappa þjáðst af aðskilnaðarkvíða og þá hafi bara vantað örlitla ást. „Og hér er kannski búið að afhjúpa hina karlmannlegu íslensku þjóðarsál – Einar ætti kannski að passa sig á blóðugum öxum þegar hann spilar næst póker með vinum sínum.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira