Snorri Helga sendur í jóga 19. júní 2011 16:00 Snorri Helgason er á leiðinni til landsins í júlí til að fylgja eftir útgáfu á plötunni Winter Sun. „
Ég er ekki beint þekktur fyrir að vera mikill íþróttamaður en jógaæfingar virðast henta mér ágætlega," segir Snorri Helgason tónlistarmaður, en hann uppgötvaði nýlega hvað hugleiðsluíþróttin fer vel saman við tónlistarbransann, sem oft á tíðum getur tekið á líkama og sál. Snorri hefur verið búsettur í London undanfarið ár ásamt unnustu sinni, Hildu Gunnarsdóttur fatahönnuði. Þar er hann að koma sinni eigin tónlist á framfæri. Það var einmitt á tónleikum í Þýskalandi með hljómsveitinni Hjaltalín sem Snorri var hvattur til að fara að hreyfa sig. „Ég var að gera nokkrar hnébeygjur og liðka mig til svona rétt áður en ég steig á svið þegar það heyrðist mikið brak úr hnjánum á mér. Krakkarnir létu mig heyra það og sögðu að svona brak væri ekki eðlilegt í ungum manni eins og mér," segir Snorri glettinn, en hann stundar nú jóga af miklum móð og finnur mun. „Brakið er samt ekki farið enn þá en mér finnst þetta þægilegt. Ég ætla ekki að verða neinn jógagúru en held að ég sé að ná því að vera ekki kaldhæðinn og fara í þetta með opnum huga, sérstaklega þegar kennarinn segir okkur að „anda heiminum inn og áhyggjum út"." Snorri er væntanlegur til landsins innan skamms til að fylgja útgáfu plötu sinnar Winter Sun eftir en hún kemur út í júlí. Hann kemur fram á LungA hátíðinni um miðjan júlí og Innipúkanum um verslunarmannahelgina en í næstu viku kemur út nýtt lag með Snorra sem nefnist River. „Við ætlum okkur að vera áfram í London en tónlistarbransinn hér er nokkuð harður enda mikið framboð af svipaðri tónlist. Ég finn samt að hlutirnir eru að komast í rútínu og ég er farinn að spila á réttu stöðunum." - áp
Mest lesið Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Lífið Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Lífið Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Lífið Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Lífið Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Lífið Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Lífið Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart Lífið Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Borgarstjóri fagnaði brúðkaupsafmæli með strætóferð og indverskum mat Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Sjá meira