Háskólalestin fer af stað um helgina 27. apríl 2011 11:57 Sprengjugengið verður með í för.
Háskóli Íslands ræsir svokallaða Háskólalest á föstudaginn kemur en í tilefni af aldarafmæli skólans mun hann ferðast um landið með fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Í Háskólalestinni verða viðburðir og vísindi, fjör og fræði. Fyrstu áfangastaðir Háskólalestarinnar eru Stykkishólmur og Hvolsvöllur en á ferðaáætlun lestarinnar í sumar eru samtals níu viðkomustaðir. Verkefnið er unnið í samstarfi við Rannsóknasetur HÍ á landsbyggðinni, Háskóla unga fólksins, Vísindavefinn, grunnskóla, sveitarfélög og fleiri. Heimsókn Háskólalestarinnar á hverjum áfangastað stendur yfirleitt í tvo daga, þann fyrri sækja grunnskólanemar margvísleg námskeið en síðari dagurinn er ætlaður gestum á öllum aldri. Viðkomustaðir lestarinnar verða Stykkishólmur, Hvolsvöllur, Höfn í Hornafirði, Skagaströnd, Húsavík, Bolungarvík, Egilsstaðir, Sandgerði og Seltjarnarnes.Vísindaveisla í Stykkishólmi 29. og 30. apríl Í Stykkishólmi býðst nemendum í 5. – 10. bekk grunnskólans að að sækja valin námskeið úr hinum vinsæla Háskóla unga fólksins föstudaginn 29. apríl. Þar kynnast nemendur japönsku, stjörnufræði, eðlisfræði, nýsköpun, íþrótta- og heilsufræði og jarðfræði. Að morgni laugardagsins 30.apríl, kl 10:30, er boðið í fuglaskoðun undir leiðsögn sérfræðinga Náttúrustofu Vesturlands og Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi. Klukkan 12 til 16 verður síðan efnt til sannkallaðrar vísindaveislu á Vísindavöku W23 á Hótel Stykkishólmi. Í fjölbreyttri dagskrá er meðal annars sýning félaga úr Sprengjugenginu landsfræga, eldorgel, stjörnutjald, leikir, japönsk menning, Vísindavefur HÍ og undur jarðar, hafs og himins. Kynntar verða náttúrurannsóknir á Snæfellsnesi, rannsóknarkafbáturinn Gavia verður til sýnis og háfur verður krufinn. Gestir geta kynnt sér radíósenditækni í minkum og skoðað krabba, fugla, fiska og spendýr svo fátt eitt sé nefnt. Í stuttum fræðsluerindum kynnast gestir meðal annars bernskubrekum æðarblika, botndýrum við Íslandsstrendur, eðli minksins og ferðum geimfara um himingeiminn.Hvolsvöllur 1. og 6. maí Á Hvolsvelli hefur verið undirbúin umfangsmikil dagskrá sunnudaginn 1. maí í Grunnskóla Hvolsvallar kl. 13 til 17. Þar verða sýnitilraunir af ýmsu tagi, Sprengju-Kári mætir á svæðið, teikniróla sýnd og stjörnutjald ásamt japanskri menningu. Vísindavefur HÍ verður á staðnum og kynnt verða undur jarðar og farið verður í spennandi úti- og innileiki fyrir alla fjölskylduna. Tónlist mun óma með eldorgelinu og Ástráður veitir góð ráð um ástina. Landgræðslustöð ríkisins að Gunnarsholti, Háskólafélag Suðurlands og Rannsóknasetur HÍ á Suðurlandi taka þátt í dagskránni með kynningum og erindum. Meðal efnis sem fjallað verður um er Skógar og aska, Katla geopark, komu farfugla, gosið í Eyjafjallajökli og listina að lífláta lúpínu. Föstudaginn 6. maí sækja nemendur 5. – 10. bekkjar Hvolsskóla námskeið í Háskóla unga fólksins í stjörnufræði, dönsku, kynjafræði, nýsköpun, jarðvísindum og stjórnmálafræði. Um miðjan maí verður haldið til Hafnar í Hornafirði, þar næst á Skagaströnd og Húsavík.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira