Innlent

Neitaði að fara heim og réðst á lögreglumenn

mynd úr safni
Ekið var á tvær rollur við Akrafjallsveg og drápust báðar auk þess sem bifreiðin var talsvert skemmd eftir höggið. Hlið á girðingu hafði fallið niður og höfðu bæði hross og rollur sloppið út.

Ofurölvaður maður var fjarlægður af veitingastað á Akranesi í vikunni og hugðust lögreglumenn koma honum heim. Hann virtist þó ekki vera alveg á þeim nótunum því eftir að honum hafði verið komið inn kom hann hlaupandi út aftur og réðst að lögreglumönnum. Hann var því handjárnaður og vistaður í fangaklefa þar til af honum var runnið.

Þá kom einnig til átaka í heimahúsi í bænum í vikunni. Svo virðist sem maður hafi komið þangað í leit að áfengi og verið ósáttur þegar húsráðandi sagði honum að það væri ekki til. Atburðarás er nokkuð óljós en svo virðist sem aðkomumaður hafi ráðist á húsráðanda sem varðist og hafði hinn undir. Lögregla fór með „gestinn“ á slysadeild þar sem talsvert sá á honum og eftir læknisskoðun var hann færður í fangageymslu. Hann var svo yfirheyrður að morgni en mundi lítið eftir atburðarásinni.

Brotist var inn á verkstæði í bænum í vikunni. Hurð hafði verið spennt upp og rúða brotin. Talsvert hafði verið rótað þarna inni en ekki er ljóst hvort einhverju var stolið. Málið er í rannsókn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×