Viljayfirlýsingar um orkuna fyrir norðan 20. október 2011 06:00 Alcoa er hætt við álver á Bakka en þrjú fyrirtæki hafa undirritað viljayfirlýsingu við Landsvirkjun um nýtingu orku í Þingeyjarsýslum. mynd/kk
Hvernig standa mál varðandi orku í Þingeyjarsýslum? Þrjú fyrirtæki hafa undirritað viljayfirlýsingu við Landsvirkjun um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Útboð er í gangi varðandi hönnun á mannvirkjum varðandi virkjanir við Bjarnarflag og Þeistareyki, sem samanlagt munu gefa 180 megavött. Alcoa tilkynnti á mánudag að fyrirtækið væri fallið frá hugmyndum um byggingu álvers við Bakka á Húsavík. Margir hafa gagnrýnt stjórnvöld fyrir þá þróun mála og sagt þau hafa staðið í vegi fyrir uppbyggingu álversins. Fyrirtækin sem þegar hafa undirritað viljayfirlýsingu við Landsvirkjun eru, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, PCC og Thorsil, sem bæði starfa á sviði kísilmálms, og Charbon Recycling International, sem sérhæfir sig í metanólframleiðslu. Auk þessara fyrirtækja hefur finnska fyrirtækið Kemira sýnt áhuga á framkvæmdum á svæðinu. Þá hefur nafn kínverska álframleiðandans Bosai einnig verið nefnt, en minna er vitað um hvernig þau mál standa. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra undirritaði í júní viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og fjögurra sveitarfélaga á Norðausturlandi. Þar var lögð áhersla á mikilvægi þess að jarðvarmi í Þingeyjarsýslum yrði notaður til umfangsmikillar atvinnuuppbyggingar og eflingar byggðar á svæðinu. Með viljayfirlýsingunni var stefnt að því að skapa þær aðstæður að allri nauðsynlegri forvinnu verði lokið þegar gengið verður til samninga við einn stóran orkukaupanda eða fleiri minni orkukaupendur um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum. Ásamt iðnaðarráðherra skrifuðu undir viljayfirlýsinguna fulltrúar Skútustaðahrepps, Þingeyjarsveitar, Tjörneshrepps og Norðurþings. Sveitarstjóri síðastnefnda sveitarfélagsins, Bergur Elías Ágústsson, lýsti yfir vonbrigðum með niðurstöðu Alcoa, en sagði hana í takt við þær nýju áherslur sem ítrekað hefðu komið fram hjá stjórnvöldum og Landsvirkjun. Bergur hefur sagt að enn sé stefnt að því að skapa 600 til 800 störf í héraðinu. Í samtali við Fréttablaðið í ágúst sagði hann það hafa verið markmiðið frá 1998. „Ef við gerum það með álveri þá er það flott, ef það er eitthvað annað þá er það fínt," sagði hann þá og bætti við að í raun væri allt klárt, aðeins þyrfti að ganga frá samningum við orkukaupendur. Nú þegar Alcoa er fallið frá áformum sínum má búast við að aukinn þungi færist í viðræður við hin fyrirtækin. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira