Um 33 prósent segja koma til greina að kjósa nýtt framboð Guðmundar 20. október 2011 11:16 Guðmundur Steingrímsson hefur stofnað nýtt framboð og hyggst bjóða fram í næstu þingkosningum.
Einn af hverjum þremur segir það koma til greina að kjósa nýtt framboð Guðmundar Steingrímssonar, samkvæmt skoðanakönnun sem MMR framkvæmdi 6. til 10 október síðastliðinn. Minnstur stuðningur við framboðið er meðal Sjálfstæismanna en mestur meðal Samfylkingarfólks. MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvort kæmi til greina að kjósa nýtt framboð Guðmundar. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 33,5 prósent að það kæmi til greina en meirihlutinn, eða 66,5 prósent sagðist ekki myndu kjósa framboðið. Samkvæmt könnuninni var nokkur munur á afstöðu fólks til þess hvort það kæmi til greina að kjósa nýtt framboð Guðmundar eftir aldri, búsetu og sérstaklega eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Af þeim sem tóku afstöðu voru þeir sem bjuggu á höfuðborgarsvæðinu jákvæðari gagnvart framboðinu en þeir sem búa á landsbyggðinni. Þannig sögðust 36,6% höfuðborgarbúa að það kæmi til greina að kjósa nýtt framboð Guðmundar en hlutfallið var 28,1% meðal fólks á landsbyggðinni. Þeir sem voru á aldrinum 30 - 49 ára voru jákvæðari í garð framboðs Guðmundar því 39,4% þeirra sögðu það koma til greina að kjósa hann borið saman við 36,1% þeirra sem voru í yngsta aldurshópnum (19 - 29 ára) og 24,2% elsta aldurshópsins (50 - 67 ára). Af þeim sem tóku afstöðu var stuðningsfólk Samfylkingarinnar líklegast til að gefa nýju framboðinu atkvæði sitt en stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins ólíklegast. Þannig sögðust 65,9% Samfylkingarfólks að það kæmi til greina að kjósa framboðið borið saman við 47,5%, stuðningsfólks Vinstri grænna, 17,4% stuðningsfólks Framsóknarflokksins og 7,4% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins.Nánar um könnunina hér.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira