Brjálaðist út af þvottinum og sló lögregluþjón 20. október 2011 15:46 Vatnglas.
Tæplega þrítugur karlmaður var dæmdur í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að slá lögreglumann hnefahöggi sem ætlaði að rétta honum vatnsglas. Árásin átti sér stað á bráðageðdeild Landspítalans í ágúst síðastliðnum en þangað var maðurinn færður eftir að hann æsti sig fram úr hófi á sambýli, sem hann bjó á, þegar í ljós kom að þvottur sem hann ætlað að þvo á 30 gráðum, reyndist hafa verið þveginn á 90 gráðum. Maðurinn er mikill að vexti og gættu fjórir lögreglumenn mannsins á spítalanum þegar atvikið átti sér stað. Fram kemur í dóminum að maðurinn skilji muninn á réttu og röngu, en það virðist stundum ekki skipta hann máli eins og það er orðað í dóminum. Svo er við þetta bætt: „Því miður hefur hann komist ansi langt með hótana- og ofbeldishneigð sinni." Maðurinn neitaði sök og hélt því fram að hann hefði slegið undir vatnsglasið en ekki í lögreglumanninn. Allir lögreglumennirnir lýsa hinsvegar atburðarásinni eins, sem er að maðurinn hafi slegið lögreglumanninn þegar hann rétti honum vatnglasið. Maðurinn hefur margsinnis komist í kast við lögin vegna vímuefnaneyslu sinnar.
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Sjá meira