Innlent

Hefur ekkert heyrt í Hönnu Birnu

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gerir alveg eins ráð fyrir því að Hanna Birna Kristjánsdóttir bjóði sig fram gegn honum á landsfundi í nóvember. Hann er fullur sjálfstrausts fyrir landsfundinn en segist ekkert hafa rætt við Hönnu Birnu síðan í júlí.

Allt stefnir í harðvítug átök á næsta landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fer fram 17.-20. nóvember næstkomandi. Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur ekki enn gefið það út formlega hvort hún bjóði sig fram gegn sitjandi formanni en sterkar vísbendingar eru um að kosningabaráttan sé komin á fullt bak við tjöldin.

Bjarni Benediktsson var gestur í þættinum Klinkinu í dag.

Ert þú að búa þig undir formannsslag við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur? „Ég er alltaf tilbúinn í kosningu um formannsembættið."

En er hún að fara gegn þér? „Ég geri alveg eins ráð fyrir því, eða einhver annar," sagði Bjarni, en sagði að hann og Hanna Birna hefðu ekki rætt saman síðan í júlí síðastliðnum. Bjarni sagðist í raun ekki vita með vissu hvort hún ætlaði að bjóða sig fram gegn sér.

Bjarni hefur verið að mælast með mun lakari stuðning en Hanna Birna í skoðanakönnunum sem hafa birst. Hverjar eru skýringarnar á því? „Ég kann engar skýringar á því. Ég get bara sagt þér að þeir sem standa í eldlínunni í stjórnmálunum eru ekkert endilega alltaf vinsælustu mennirnir í landinu. Og ég tel að ég hafi margoft sýnt að ég sé tilbúinn að standa með minni sannfæringu þegar á þarf að halda. Til lengri tíma litið tel ég að það verði alltaf metið við menn sem eru í stjórnmálum að þeir hagi ekki skoðunum sínum eftir því hvernig vindar blása hverju sinni," sagði Bjarni. thorbjorn@stod2.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×