Bjarni Ben: Við munum draga allar skattahækkanir til baka Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. október 2011 19:15
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Sjálfstæðisflokkurinn leggi á það áherslu að allar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar verði dregnar til baka, líka auðlegðarskatturinn. Bjarni segir hann í eðli sínu ósanngjarnan þar sem um hreinan eignarskatt sé að ræða. Ómögulegt sé t.d að láta fólk sem hafi mjög takmarkaðar tekjur, en eigi eignir, greiða slíka skatta. Sjálfstæðisflokkurinn kynnti tillögur sínar í efnahagsmálum í gær. Bjarni var gestur okkar í Klinkinu í dag, sérstökum viðtalsþætti um efnahags- og þjóðfélagsmál á viðskiptavef Stöðvar 2 og Vísis. „Við erum á móti eignasköttum. Það er skattur sem er óháður tekjum fólks. Það er sagt að auðlegðarskatturinn sé eitthvað í líkingu við það sem menn ræða nú um í Bretlandi, Frakklandi, Bandaríkjunum og víðar, þar sem hann miðast við eignameira og tekjuhærra fólk, en í þessum löndum eru tekjurnar skattlagðar, ekki eignirnar. Þeir sem eru með miklar fjármagnstekjur (munu) þurfa að greiða tekjuskatt af þeim í stað þess að greiða fjármagnstekjuskatt. Hér hefur ríkisstjórnin kynnt skatt sem fer beint í eignirnar og fólk hefur lent í vandræðum með að afla sér tekna til að standa straum af skattgreiðslunum," sagði Bjarni, en hann nefndi sérstaklega eldra fólk sem hefði lokið sinni starfsævi en ætti fasteignir og þess háttar. Sjá má bút úr viðtalinu þar sem Bjarni fer sérstaklega yfir skattamálin í myndskeiðinu hér fyrir ofan. Viðtalið við Bjarna í heild sinni í Klinkinu má nálgast hér.thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira