Vildu orku á 5 árum en ekki ræða verðið 21. október 2011 06:00 Alcoa hafði ekki sótt um lóð fyrir álver á Bakka og fékkst ekki til viðræðna um mögulegt orkuverð. Forstjóri Landsvirkjunar segir mun betra að hafa fjölbreytta möguleika á kaupendum.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að Alcoa hafi ekki fengist til viðræðna um orkuverð fyrir mögulegt álver á Bakka, þrátt fyrir óskir Landsvirkjunar þar um. Hann segir Alcoa hafa óskað eftir afhendingu orkunnar innan fimm ára. Landsvirkjun hafi hins vegar talið lengri afhendingarfrest nauðsynlegan, um tíu til tólf ár, þar sem jarðvarmavirkjanir þurfi að byggja upp í skrefum. Hörður bendir á að það hafi tekið 35 ár að byggja upp 180 MW virkjanir á Reykjanesi og um 25 ár að byggja upp 400 MW svæði á Hellisheiði og Nesjavöllum. Þess vegna hefði mátt gagnrýna hugmyndir um að nýta 400 MW á tólf árum nyrðra. Fimm ár hefðu verið útilokuð. Hörður segir að það að opna viðræður um orkuna fyrir fleiri aðilum hafi styrkt samningsstöðu Landsvirkjunar til muna. Alcoa hafi beitt alþekktri samningatækni, að koma sér í sterka samningsstöðu, sitja eitt við borðið og skapa væntingar áður en farið væri að semja um verð. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir umhugsunarefni hvort Alcoa hafi spilað um meiri væntingar en efni stóðu til. „Eftir sex ár skyldi maður ætla og vona að menn væru komnir lengra en þetta, ef fullur hugur væri á verkefninu." Ráðherra benti á að fyrirtækið hefði ekki sótt um lóð undir álver, sem væri umhugsunarefni. Tvö fyrirtæki hafa þegar sótt um lóðir undir starfsemi sína fyrir norðan. Umræður voru utandagskrár á Alþingi um stöðu mála nyrðra eftir að Alcoa tilkynnti að fyrirtækið væri hætt við álver á Bakka. Stjórnarandstæðingar gagnrýndu ríkisstjórnina harðlega, sögðu hana hafa staðið í vegi fyrir áformum fyrirtækisins. Jón Gunnarsson málshefjandi, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði pólitísk fingraför ríkisstjórnarinnar vera uppi um alla veggi í málinu. Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sakaði Vinstri græn um að hafa gert allt til að koma í veg fyrir málið. Guðmundur Steingrímsson, þingmaður utan flokka, sagði Landsvirkjun hafa tekið þá skynsamlegu ákvörðun að selja þá orku sem eftir væri óvirkjuð í landinu á sem hæstu verði. Um takmarkaða auðlind væri að ræða. Hann sagði blasa við að Þingeyingar stæðu vel að vígi hvað orkusölu varðar. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar Innlent Fleiri fréttir Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Sjá meira