Innlent

Batnandi staða en lánasöfn viðkvæm

FME hóf nýverið starfsemi í nýjum heimkynnum í turninum við Höfðatorg.	Fréttablaðið/GVA
FME hóf nýverið starfsemi í nýjum heimkynnum í turninum við Höfðatorg. Fréttablaðið/GVA
Staða stóru viðskiptabankanna þriggja hefur batnað talsvert síðustu misseri. Eiginfjárstaða bankanna er hlutfallslega góð og lausafjárstaða þeirra einnig. Þetta er mat Fjármálaeftirlitsins (FME) sem fjallaði um stöðu viðskiptabankanna á blaðamannafundi í gær.

Eiginfjárhlutfall bankanna er 22,5 prósent sem er mun hærra hlutfall en víðast hvar hjá bönkum í nágrannalöndum Íslands. Eiginfjárgrunnur umfram lágmarkskröfur FME er rúmlega 145 milljarðar króna.

Enn er talsverð óvissa um þróun útlánasafnanna þótt staða þeirra hafi batnað síðustu mánuði. Um 15 prósent af bókfærðu virði útlána eru í vanskilum en samkvæmt upplýsingum frá FME er algengt að þetta hlutfall sé á bilinu 1 til 2 prósent hjá bönkum með gott útlánasafn. Miðað við þrengri kröfur um skil eru vanskil útlána rúmlega 30 prósent. Alþjóðleg niðursveifla gæti aukið vanskil enn frekar og gert það að verkum að eiginfjárstaða bankanna versnaði.

Þá leggur FME áherslu á að endurskipulagningu skulda og uppgjöri milli gömlu og nýju bankanna ljúki sem fyrst. Spurður hvort viðskiptabankarnir hafi gengið eins langt og þeir geta í niðurfærslu á lánum sagði Guðmundur Jónsson, framkvæmdastjóri lánasviðs FME, að bankarnir nálguðust þolmörk sín og yrðu að gæta sín að ganga ekki of langt.

Rekstrarkostnaður bankakerfisins er enn nokkuð hár og er þess ekki að vænta að hann lækki að ráði fyrr en endurskipulagningu skulda í lánasöfnum bankanna er lokið. Arðsemi grunnrekstrar hefur verið um 10 prósent af eigin fé og vaxtamunur hefur farið vaxandi.- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×