Batnandi staða en lánasöfn viðkvæm 21. október 2011 03:15 FME hóf nýverið starfsemi í nýjum heimkynnum í turninum við Höfðatorg. Fréttablaðið/GVA
Staða stóru viðskiptabankanna þriggja hefur batnað talsvert síðustu misseri. Eiginfjárstaða bankanna er hlutfallslega góð og lausafjárstaða þeirra einnig. Þetta er mat Fjármálaeftirlitsins (FME) sem fjallaði um stöðu viðskiptabankanna á blaðamannafundi í gær. Eiginfjárhlutfall bankanna er 22,5 prósent sem er mun hærra hlutfall en víðast hvar hjá bönkum í nágrannalöndum Íslands. Eiginfjárgrunnur umfram lágmarkskröfur FME er rúmlega 145 milljarðar króna. Enn er talsverð óvissa um þróun útlánasafnanna þótt staða þeirra hafi batnað síðustu mánuði. Um 15 prósent af bókfærðu virði útlána eru í vanskilum en samkvæmt upplýsingum frá FME er algengt að þetta hlutfall sé á bilinu 1 til 2 prósent hjá bönkum með gott útlánasafn. Miðað við þrengri kröfur um skil eru vanskil útlána rúmlega 30 prósent. Alþjóðleg niðursveifla gæti aukið vanskil enn frekar og gert það að verkum að eiginfjárstaða bankanna versnaði. Þá leggur FME áherslu á að endurskipulagningu skulda og uppgjöri milli gömlu og nýju bankanna ljúki sem fyrst. Spurður hvort viðskiptabankarnir hafi gengið eins langt og þeir geta í niðurfærslu á lánum sagði Guðmundur Jónsson, framkvæmdastjóri lánasviðs FME, að bankarnir nálguðust þolmörk sín og yrðu að gæta sín að ganga ekki of langt. Rekstrarkostnaður bankakerfisins er enn nokkuð hár og er þess ekki að vænta að hann lækki að ráði fyrr en endurskipulagningu skulda í lánasöfnum bankanna er lokið. Arðsemi grunnrekstrar hefur verið um 10 prósent af eigin fé og vaxtamunur hefur farið vaxandi.- mþl
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Fleiri fréttir Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Sjá meira