Íbúar komi að endurhönnun Hofsvallagötu 21. október 2011 13:11
Hofsvallagata var til umræðu í gærkvöldi á fjölmennum íbúafundi Hverfisráðs Vesturbæjar í gærkvöldi. Í tilkynningu frá hverfisráðinu segir að fundarmenn hafi verið einhuga um að bílaumferðin á götunni væri of hröð. Hraðinn ógni öryggi gangandi vegfarenda og geri götuna óvistlegri. Þá var bent á að gatan skeri í sundur skóla- og tómstundahverfi og rýrir að mati margra fundarmanna lífsgæðin í hverfinu. „Hverfisráð Vesturbæjar blés til þessa fundar til að virkja íbúanna til samráðs um það hvernig best væri að breyta götunni, en Jón Gnarr borgarstjóri hefur heitið peningum til framkvæmdanna,“ segir ennfremur. „Tæplega 100 manns mættu til fundarins og skiptust á skoðunum um hönnun, borgarrými, vistgötur og hraðbrautir. Að loknum fundinum var Hverfisráðinu falið að ræða við hagsmunaaðila í hverfinu, svo sem skóla, íþróttafélög, þjónustustofnanir og fyrirtæki, og að því búnu útbúa forsögn að nýrri hönnun. Annar íbúafundur verður haldinn að loknu samráðsferlinu, þar sem forsögnin verður borin undir íbúa.“ Þá segir að samráðsferlið sé hið fyrsta sinnar tegundar í Reykjavík, þar sem segja má að íbúar hverfisins hanni sjálfir eina megingötu þess. Gísli Marteinn Baldursson formaður Hverfisráðs Vesturbæjar var mjög ánægður með fundinn: „Þegar um hundrað manns mæta á fund til að ræða um hönnun og fallegt borgarumhverfi, og allar ábendingar eru jákvæðar og uppbyggilegar, þá er ekki annað hægt en að vera ánægður með upphafið að þessu merkilega samráði. Fulltrúar úr öðrum hverfum hafa þegar sett sig í samband við mig og vilja fá uppskriftina að þessu íbúasamráði, því það eru „Hofsvallagötur“ víða í borginni,“ segir Gísli Marteinn.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira