Ákalli norskrar eyju svarað úr Borgarnesi 17. október 2011 04:00 Helgi Þorvaldsson og Ingibjörg Þorsteinsdóttir ásamt börnum sínum, Þorvaldi Garðari og Guðrúnu Elínborgu.
Með flutningi 13 Íslendinga til eyjunnar Fjelberg undan Noregsströnd hefur eyjarskeggjum fjölgað um 10 prósent. Eyjan fékk styrk frá norska ríkinu til þess að laða til sín barnafjölskyldur og var ákveðið að auglýsa eftir þeim á Íslandi. Nú eru þrjár íslenskar fjölskyldur búsettar á Fjelberg ásamt þeim 108 íbúum sem fyrir voru. „Við sáum auglýsingu í Fréttablaðinu að hér á Fjelbergeyju, sem er í sveitarfélaginu Kvinnherad á Hörðalandi, væri húsnæði og vinna í boði og við ákváðum að slá til,“ segir Helgi Þorvaldsson. Hann flutti með sambýliskonu sinni, Ingibjörgu Þorsteinsdóttur, og tveimur börnum, eins og fimm ára, frá Borgarnesi til norsku eyjunnar í fyrrahaust. „Það komu svo tvær barnafjölskyldur hingað núna í haust. Við karlarnir störfum við laxeldi en konurnar eru heimavinnandi enn sem komið er,“ greinir Helgi frá. „Konan mín var að ljúka fæðingarorlofi og er að fara að leita sér að vinnu. En hún þarf ekki að fara að vinna frekar en hún vill. Við komumst leikandi af á mínum launum. Við leigjum hér stórt hús. Ég er búinn í vinnunni snemma dags og nýt þess að vera með fjölskyldunni. Heima á Íslandi þurfti maður að vera í vinnunni stóran hluta sólarhringsins til þess að hafa í sig og á.“ Í Borgarnesi starfaði Helgi í Kaupfélagi Borgfirðinga og Húsasmiðunni. „Ég var í fullri vinnu en var ekki öruggur með að geta haldið henni. Ingibjörg var í hálfu starfi við heimilishjálp. Við höfðum gælt við að flytja utan áður en hrunið kom en það ýtti okkur af stað.“ Að sögn Helga var ákaflega vel tekið á móti íslensku fjölskyldunum. „Hér eru allir elskulegir og hjálpsamir. Heimamenn sögðu okkur að leitað hefði verið til Íslands þar sem Íslendingar væri mikils metnir í Noregi, þeir væru duglegir til vinnu og hefðu lengi haft samband við Noreg. Auk þess værum við komin af Norðmönnum.“ Félagslíf í sjálfri eyjunni er frekar rólegt, að því er Helgi greinir frá. „Konurnar eru hins vegar allar í saumaklúbb og hittast á tveggja vikna fresti. Konan mín var bara búin að vera hér í viku þegar hún fór í sinn fyrsta saumaklúbb.“ ibs@frettabladid.is
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira