Höfða mál vegna milljóna Ólafs F. 17. október 2011 06:15 Ólafur F. Magnússon Var borgarstjóri þegar hann fór fram á að fá styrkinn greiddan inn á reikning eigin félags.Fréttablaðið/eyþór
Frjálslyndi flokkurinn hefur höfðað mál á hendur Reykjavíkurborg til að freista þess að innheimta um 3,4 milljónir sem greiddar voru sem styrkur til borgarfulltrúans Ólafs F. Magnússonar. Styrkurinn er lögbundinn og ber að greiða hann öllum þeim stjórnmálahreyfingum sem ná manni inn í borgarstjórn. Ólafur náði kjöri árið 2006 sem fulltrúi F-lista frjálslyndra og óháðra. Fyrst um sinn rann hið árlega framlag, tæpar 3,4 milljónir til Frjálslynda flokksins en árið 2008 stofnaði Ólafur Borgarmálafélag F-listans og lét greiða framlagið inn á reikning þess. Það var skráð á heimili Ólafs. Í stefnu Frjálslyndra á hendur borginni segir að ekki liggi fyrir hver tók ákvörðun um að greiða félagi Ólafs féð, hins vegar veki það athygli að þegar ákvörðunin var tekin hafi Ólafur verið borgarstjóri. Fyrir liggi álit ráðuneytis sveitarstjórnarmála í þá veru að Frjálslyndi flokkurinn hafi átt heimtingu á fénu og borgin hafi lagt það til grundvallar ári síðar þegar flokkurinn fékk greiðsluna en ekki Borgarmálafélag Ólafs. Frjálslyndir hafna þeim rökum borgarinnar að féð hafi verið greitt kjörnum fulltrúa þeirra og með því hafi greiðsluskyldunni verið sinnt. Borgin þurfi að bera ábyrgð á því að hafa greitt röngum aðila féð og skuldi þeim það því enn – óháð styrknum til Ólafs. - sh
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira