Bæjarstjórnarmenn vonsviknir með athugun á flutningi Gæslunnar 4. maí 2011 10:51
Bæjarstjórnin í Reykjanesbæ er vonsvikin með niðurstöður innanríkisráðuneytisins vegna hagkvæmniathugunar Deloitte á kostnaði við að flytja Landhelgisgæsluna á Keflavíkurflugvöll. Í ályktun bæjarstjórnarinnar segir að í könnuninni sé kostnaður við rekstur gæslunnar „eins og hann er í dag, þar sem fyrirkomulag áhugamannaliðs er við líði, starfsmenn á bakvöktum og útkallstími því umtalsverður, borin saman við rekstur atvinnumannaliðs þar sem starfsmenn eru á vakt öllum stundum, starfsmannafjöldi langtum meiri og útkallstími því miklu styttri.“ Þá benda þeir á að gert sé ráð fyrir því að ríkissjóður þurfi að greiða starfsmönnum laun og bílastyrki fyrir að aka til vinnu í Reykjanesbæ, greiðslur sem Suðurnesjamenn þekki ekki til að fá greiddar þrátt fyrir störf á höfuðborgarsvæðinu. „Sá kostnaður sem Deloitte telur að hljótist af flutningi gæslunnar til Suðurnesja er því ekki vegna flutningsins heldur vegna þeirrar hugmyndar að stórauka starfsemi gæslunnar, fjölga starfsmönnum og auka öryggi þeirra sem þurfa á þjónustu gæslunnar að halda,“ segir einnig. Bæjarstjórnin segir ennfremur að ekki sé lagt mat á að með flutningunum muni rekstur og þjónusta gæslunnar aukast og að styttra sé á þjónustusvæði gæslunnar frá Reykjanesbæ. „Ekki er heldur lagt mat á að húsakostur sá er Landhelgisgæslunni stendur til boða á Keflavíkurflugvelli er í raun eins og hannaður fyrir það hlutverk sem hún á að sinna. Þá eru þau verkefni sem áður voru hjá Varnarmálastofnun og Landhelgisgæslan sinnir nú, í uppnámi og hætta er á að þau störf flytjist úr landi, sinni Landhelgisgæslan þeim ekki.“ Að mati bæjarstjórnarinnar er ófært að að hagkvæmnisathugunin skuli ekki taka til þess að kanna tækifærin sem felist í því að láta Landhelgisgæsluna taka yfir störf fyrrum Varnarmálastofnunar. „Mikilvægt er að samráðsvettvangur stjórnvalda og sveitarfélaga á Suðurnesjum fari rækilega yfir þá vinnu sem þegar hefur verið lögð fram og vinni áfram að því að fullgera hagkvæmniathugun þar sem samræmis er gætt í samanburðartölum og allir kostir verkefnisins eru skoðaðir og metnir.“
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira