Vilja að nýr Landspítali verði forgangsverkefni 25. nóvember 2011 14:24 Landspítalinn.
Félags atvinnurekenda vill að uppbygging nýs Landspítala Háskólasjúkrahúss verði gert að forgangsverkefni samkvæmt yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér í dag. Þar er vitnað í skýrslu norska ráðgjafarfyrirtækisins Hospitalitet, en þar kemur fram að talið er að nýr spítali muni skila u.þ.b. 2,6 ma.kr. árlegum sparnaði í rekstri. Stjórn Félags atvinnurekenda telur að uppbyggingu spítalans eigi að líta á sem forgangsmál og hvetur því félagið stjórnvöld og borgaryfirvöld til að tryggja málinu hraðan, farsælan og faglegan framgang. Síðast en ekki síst bendir félagið á að spítalaverkefnið sé kærkomið fjárfestingarverkefni fyrir atvinnulífið, jafnt byggingarverktaka sem og ýmis konar þjónustuaðila og innflytjendur. Verkefnið hefði mjög jákvæð áhrif á atvinnustig og á fjárfestingu, sem er í sögulegu lágmarki um þessar mundir. Hér fyrir neðan má svo lesa tilkynningu stjórnarinnar í heild sinni: Mikil undirbúningsvinna hefur verið unnin vegna byggingar nýs Landspítala Háskólasjúkrahúss. Samkvæmt öllum gögnum málsins er ljóst að bygging nýs spítala skilar verulegu hagræði í rekstri spítalans. Í skýrslu norska ráðgjafarfyrirtækisins Hospitalitet er talið að nýr spítali muni skila u.þ.b. 2,6 ma.kr. árlegum sparnaði í rekstri. Áframhaldandi rekstur LSH án umtalsverðra húsnæðisbreytinga hefur mikinn kostnaðarauka í för með sér og er sóun á tækifæri til aukinnar framleiðni í rekstri spítalans. Þá uppfyllir núverandi húsnæði ekki lágmarkskröfur til spítala og stendur í vegi fyrir að hægt sé að nýta nýjustu tækni í tækjabúnaði, þar sem bæði burðarþol og lofthæð er orðin takmarkandi þáttur. Að auki er bygging nýs spítala nauðsynleg fyrirhyggja til að mæta aukinni þjónustuþörf samfara því sem þjóðin eldist. Á næstu 14 árum – eða til ársins 2025 – mun Íslendingum á aldrinum 60 ára og eldri fjölga um yfir 50% skv. spám Hagstofunnar. Það er sá hópur sem er í mestri þörf fyrir heilbrigðisþjónustu og því verður uppbygging að taka mið af þessu. Nýr spítali tryggir ennfremur að framboð á hágæða læknisþjónustu eykst og LSH verður þannig ákjósanlegur vinnustaður fyrir hámenntaða Íslendinga, sem annars sjá ekki atvinnutækifæri á Íslandi. Stjórn Félags atvinnurekenda telur að ofangreind atriði eigi að líta á sem forgangsmál og hvetur stjórnvöld og borgaryfirvöld til að tryggja málinu hraðan, farsælan og faglegan framgang. Í málum sem þessum verður að horfa til langs tíma, á fjárhagsleg rök og á fyrirsjáanlegar breytingar á aldurssamsetningu þjóðarinnar. Síðast en ekki síst verður að benda á að spítalaverkefnið er kærkomið fjárfestingarverkefni fyrir atvinnulífið, jafnt byggingarverktaka sem og ýmis konar þjónustuaðila og innflytjendur. Verkefnið hefði mjög jákvæð áhrif á atvinnustig og á fjárfestingu, sem er í sögulegu lágmarki um þessar mundir.
Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Mokgræðir á rafmyntum Innlent Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Sjá meira