Nolan fær ekki nóg af Batman 5. apríl 2011 17:00 Christopher Nolan mun leikstýra næstu og framleiða þarnæstu kvikmyndir um riddara næturinnar.
Aðdáendur Bruce Wayne og hliðarsjálfs hans, Batman, geta tekið gleði sína á ný, því leikstjórinn Christopher Nolan hyggst ekki yfirgefa riddara næturinnar jafn snögglega og gefið hafði verið í skyn. Nolan er nú að undirbúa sig fyrir þriðju myndina um Batman en hinar tvær, Batman Begins og Dark Knight, hafa notið feikilega mikillar hylli meðal gagnrýnenda og áhorfenda. Nolan hafði lýst því yfir að þetta yrði hans síðasta mynd um þrotlausa baráttu Batman við þrjóta Gotham-borgar og það er allt satt og rétt. Hins vegar láðist Nolan að nefna það að hann myndi framleiða sjálfstætt framhald þeirra mynda. Forseti Warner Bros., Jeff Robinov, upplýsti þetta í samtali við Los Angeles Times. „Við fáum þriðju Batman-myndina en síðan þurfum við að endurskoða söguna og gera eitthvað nýtt með honum. Christopher Nolan mun framleiða ásamt Emmu Thomas og það er því í þeirra höndum hvert framhaldið verður." Þetta minnir óneitanlega á örlög Spider-Man þríleiksins eftir Sam Raimi en nú hefur verið ákveðið að gera kvikmyndir um unglingsárin í lífi þeirrar hetju. Raimi kemur reyndar ekkert nálægt þeim. Nolan hefur verið að safna liði fyrir þriðju myndina og þegar hefur verið staðfest að þau Anne Hathaway, Tom Hardy og Joseph Gordon-Levitt muni leika í myndinni við hlið Michael Caine og Christian Bale.- fgg
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira