Réttað yfir lögreglumanni 6. október 2011 09:47 Héraðsdómur Reykjavíkur.
Aðalmeðferð fer nú fram í máli ríkissaksóknara gegn lögreglumanni sem hefur verið ákærður fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Meint brot áttu sér stað þegar lögreglumaðurinn veitti ökumanni eftirför úr Reykjavík í Mosfellsbæ í ágúst á síðasta ári. Lögreglumaðurinn, sem er rúmlega fimmtugur og starfar sem varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, neitaði sök þegar málið var þingfest í maí síðastliðnum. Málavextir eru þeir að lögreglumaðurinn var undir stýri lögreglubíls og mældi ungan ökumann á of miklum hraða í Reykjavík. Hann gaf honum í kjölfarið merki um að stöðva bílinn en sá virti það að vettugi, ók greitt um götur borgarinnar og síðan áleiðis í Mosfellsbæ. Maðurinn ók að lokum inn í öngstræti í Leirvogstungu og neyddist til að stöðva bílinn. Hann stökk síðan út úr honum. Lögregluvarðstjórinn kom aðvífandi á bíl sínum, tókst ekki að stöðva hann í tæka tíð og ók á unga manninn, sem hlaut opið beinbrot á vinstra fæti. Í ákæru er því haldið fram að varðstjórinn hafi ekið ógætilega að bílnum og of hratt miðað við aðstæður og þannig orðið valdur að slysinu. Ungi maðurinn fer fram á ríflega tvær og hálfa milljón króna í bætur frá lögreglumanninum.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira