Úr ristuðu brauði með osti í ansi góða lagskipta tertu 16. febrúar 2011 13:30 Daníel Ágúst sendir frá sér aðra sólóplötu sína í byrjun mars.fréttablaðið/stefán
Daníel Ágúst sendir í byrjun mars frá sér aðra sólóplötu sína. Platan var í upphafi ristað brauð með osti, en varð að bragðmikilli tertu. „Hún átti að vera kassagítarplata, en ég skipti um skoðun þegar ég var búinn að taka upp kassagítar og söng. Þá fannst mér vanta töfraprikið,“ segir tónlistarmaðurinn Daníel Ágúst Haraldsson. Daníel hefur samið við útgáfu Valgeirs Magnússonar og Örlygs Smára, Hands Up Music, um útgáfu á annarri sólóplötu sinni í byrjun mars. Platan var meðal annars unnin í Island-hljóðverinu í Vestmannaeyjum, sem er staðsett í gamla Betel-safnaðarhúsinu þar í bæ. „Ég bjó þar í tæpa viku og eldaði egg og beikon ofan í mannskapinn,“ segir Daníel léttur um dvölina í Vestmannaeyjum. En um hvað fjallar platan, ástina og lífið? „Já, ástina og lífið eins og venjulega. Það er reyndar eitt lag sem fjallar um gleði bingóíþróttarinnar.“ Var heimildavinnan unnin í Vinabæ? „Nei. Hún kom í þessu Betel-safnaðarhúsi. Það var safnaðarandi sem sveif yfir vötnum og mér fannst spennandi að beisla þann anda í bingói.“ Gítarleikararnir Gummi P. og Bjarni í Mínus léku undir á plötunni ásamt Óla Hólm og Stefáni Magnússyni. Addi 800 beislaði hljóminn og Jón Ólafsson, félagi Daníels í Nýdanskri, kláraði með honum plötuna. Saman sá hópurinn til þess að platan varð ekki kassagítarplata, eins og hún átti að vera í upphafi. „Hún var frekar fátæklegt af því að ég hef fengið að kynnast því hvað það er hægt að galdra mikið. Mig langaði að gera hljóðheiminn aðeins margslungnari,“ segir Daníel. „Kassagítarinn er grunnur laganna – stoðkerfið. Svo kemur allt utan á, með, undir og yfir, og býr til ansi góða lagskipta tertu. Mjög brögðótta marglaga köku sem mér finnst bragðast mjög vel. Þegar kassagítarplatan var tilbúin bragðaðist hún eins og ristað brauð með smjöri og osti, sem er ágætt. En ekki ef maður vill fá sér eitthvað gott á sex ára fresti, eins og í mínu tilfelli. Síðasta sólóplata kom út árið 2005.“ Daníel hyggst fylgja plötunni eftir með tónleikahaldi hérlendis, en frekari landvinningar verða að koma í ljós, að hans sögn. „Það er nóg að gera. GusGus er að koma með plötu í lok apríl, byrjun maí.“ Og Nýdanskir deyja aldrei? „Nei, við erum með sýningu í Borgarleikhúsinu sem gengur vel, þannig að ég er með mörg járn í eldinum.“atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira