Sverrir Jakobsson hlaut 1,6 milljón króna styrk 14. febrúar 2011 14:35 Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, Sverrir Jakobsson styrkhafi, Sören Langvads (sonur Selmu og Kays) og Hafliði P. Gíslason, prófessor í eðlisfsræði. Mynd Kristinn Ingvarsson
Sverrir Jakobsson, aðjunkt í sagnfræði við Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr sjóði Selmu og Kays Langvads. Stjórn sjóðsins afhenti styrkinn á skrifstofu rektors, föstudaginn 4. febrúar. Styrkurinn er veittur til að efla samskipti og rannsóknasamstarf Háskóla Íslands við danskar stofnanir og háskóla. Styrkurinn hljóðar upp á 75 þúsund danskar krónur sem samsvara tæplega 1,6 milljónum íslenskra króna. Sverrir hefur sérhæft sig í hugarfarssögu, rannsóknum á almennu hugarfari fyrri alda og þá sérstaklega viðhorfum Íslendinga á miðöldum til umheimsins. Nýlegar rannsóknir Sverris hafa beinst að rými, valdi og orðræðu í íslensku miðaldasamfélagi, þar sem hann hefur m.a. skoðað hlutverk kirkjugriða og þróun valdatengsla frá persónubundnu valdi til svæðisbundins valds á 13. öld. Sverrir sinnti fræðistörfum við Árnastofnun í Kaupmannahöfn árin 2008-2010 og hefur einnig verið í skemmri rannsóknarleyfum við þá stofnun og stofnun klassískra fræða, Institut for græsk og latin. Sumarið 2009 kenndi hann við rannsóknaskóla um norræn fræði við háskólann í Árósum. Sverrir mun nýta styrkinn til að stuðla að enn frekara rannsóknasamstarfi íslenskra og danskra fræðasamfélaga. Sverrir Jakobsson lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands, meistaranámi frá Leeds-háskóla og varði doktorsritgerð sína, Við og veröldin. Heimsmynd Íslendinga 1100-1400, við Háskóla Íslands í apríl árið 2005. Sverrir kennir námskeið á BA- og MA-stigi við Háskóla Íslands, þ.á m. námskeið um sögu Norðurlanda, en auk þess hefur hann verið leiðbeinandi við lokaritgerðir. Sverrir hefur birt fjölda vísindagreina í íslenskum og erlendum fræðiritum um rannsóknir sínar á sviði sagnfræði. Hann hefur einnig ritað almennt um sögu Norðurlandanna, með áherslu á Danmörku og Noreg. Sverrir er höfundur miðaldakaflans í yfirlitsriti á dönsku um sögu vestnorrænna þjóða sem kemur út í Kaupmannahöfn á þessu ári. Sjóðurinn Selma og Kay Langvads Legat til udvikling a f den kulturelle forbindelse mellem Island og Danmark var stofnaður með peningagjöf hjónanna Selmu, fæddrar Guðjohnsen, og Kays Langvads, verkfræðings við Háskóla Íslands, árið 1964. Tilgangur sjóðsins er að efla menningarleg tengsl Íslands og Danmerkur. Í stjórn sjóðsins sitja Sören Langvad, sonur Selmu og Kays Langvads, Hafliði Pétur Gíslason, prófessor í eðlisfræði, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Sjá meira