Dýraspítali og hesthús á hjólum 4. nóvember 2011 06:00 Fjöldi fólks kom að því að flytja heilan dýraspítala, ásamt hesthúsi, af gamla Glaðheimasvæðinu yfir á Kjóavelli í gær. Tveir hundrað tonna kranar voru notaðir enda verkið umfangsmikið. Flutningunum lýkur í dag. Fréttablaðið/Valli
Dýraspítali og hesthús, samtals 230 fermetrar að stærð, voru flutt í heilu lagi af fyrrverandi svæði hestamannafélagsins Gusts í Glaðheimum og á Kjóavelli, þar sem Gustsmenn hafa fengið úthlutað nýju svæði. Björgvin Þórisson dýralæknir, sem á og rekur dýraspítalann Drösul, sagði að undirbúningur þessara stórflutninga hefði tekið sex vikur. Við verkið hefðu verið notaðir tveir hundrað tonna kranar. Þá var lengsti vagn landsins notaður til að ferja húsið. Dýraspítalinn Drösull hóf starfsemi á gamla Gustssvæðinu árið 2003. Að sögn Björgvins eru gerðar bæði stórar og smærri aðgerðir á hestum auk þess sem þar er hægt að leita aðstoðar við eitt og annað sem til fellur. “Hér koma fjölmargir á hverju ári; hestar með mannavandamál að stærstum hluta”, segir Björgvin. Að jafnaði eru tveir dýralæknar til þjónustu reiðubúnir á spítalanum en Björgvin segir það innvaxið í starfið að vera alltaf á vakt. Vandamál sem upp koma séu ekki bundin við opnunartíma verslana og sveiflur á milli góðæris og kreppu gæti ekki heldur. “Viðveran er mikil, sama á hverju gengur,” segir Björgvin Allur gærdagurinn fór í flutningana og kom að þeim fjöldi fólks. Búist var við að verkinu ljúki um hádegi í dag. „Þetta var mjög vel skipulagt og allt gekk að óskum,“ segir Björgvin, sem býst við að opna spítalann aftur um mánaðamótin janúar/febrúar.- jss, shá
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Fleiri fréttir „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Sjá meira