Staða Íslendinga sterkari í Icesave deilunni Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 29. október 2011 18:31
Lögmaður sem sat í Icesave samninganefndinni telur að staðfesting neyðarlaganna fyrir Hæstarétti í gær styrki málstað Íslendinga og dragi úr áhættu ef illa fer í Icesave málinu fyrir EFTA dómstólnum. ESA, eftirlitsstofnun EFTA, á enn eftir að ákveða hvort Icesave málið fari fyrir EFTA dómstólinn, en ef svo fer verður tekist á um hvort Íslendingar hafi brotið gegn EES samningnum og ríkissjóði borið að tryggja innistæður breskra og hollenskra sparifjáreigenda. Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður sem sat í Icesave samninganefndinni, segir að dómur hæstaréttar um að neyðarlögin haldi hafi jákvæð áhrif á stöðu Íslands og innistæðutryggingasjóða í Bretlandi og Hollandi verði málinu fram haldið. „Það þýðir að ef einhvertíman verður talið að Ísland hafi brotið gegn EES samningnum, og spurningar rísa um skaðabótaskyldu vegna þess, þá er tjónið margfalt minna hjá Bretum og Hollendingum, heldur en ef neyðarlögin hefðu ekki staðist," segir Jóhannes Karl. Fréttir bárust fyrir nokkru af því að eignir í þrotabúi Landsbankans myndu að öllum líkindum duga fyrir öllum forgangskröfum í búið samkvæmt neyðarlögunum, þar á meðal heildsöluinnlánum sveitarfélaga og líknarfélaga, og nú hefur lögmæti neyðarlaganna verið staðfest. Geta Íslendingar þá leyft sér að vera bjartsýnir á framhald málsins? „Ég er sjálfur hóflega bjartsýnn auðvitað," segir Jóhannes. „Það er áhætta fólgin í þessu ágreiningsmáli eftir sem áður, en þetta er tvímælalaust jákvæð frétt. Hún mun styrkja málstað okkar og draga úr áhættunni ef illa fer."
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira