Innlent

Mikil leit að þremur strokupiltum í Skagafirði

Björgunarsveitarmenn Landsbjargar hafa í nótt leitað þriggja unglingspilta, sem struku af meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði í um tíuleitið í gærkvöldi.

Björgunarmenn hófu leit klukkan eitt í nótt og nú er verið að fjölga leitarmönnum. Lögð er áhersla á að leita í útihúsum við sveitabæi, og öðrum stöðum þar sem skjól er að finna, en það hefur verið kalsa veður með rigningarsudda í Skagafirði í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×