Lögregla gerir dauðaleit að banvænu dópi 2. maí 2011 06:30
Lögregla leggur nú allt kapp á að rekja uppruna og dreifingarleiðir fíkniefnisins PMMA, sem grunur leikur á að hafi dregið tvítuga stúlku til dauða á laugardagsmorgun. Stúlkan var stödd í samkvæmi hjá kunningja sínum þegar hún lést. Hún hafði neytt fíkniefna. Dánarorsök liggur ekki fyrir en í ljósi þess að PMMA hafði fundist í fyrsta sinn á Íslandi fyrr í apríl, í fórum manns í Borgarnesi, beindist grunur strax að því. Lögregla handtók fjóra á staðnum og lagði hald á fíkniefni. Á laugardagskvöld var leitað í tveimur húsum til viðbótar og fleiri handteknir. Lögregla hélt áfram að rekja sig eftir viðskiptaslóðinni og gerði þriðju húsleitina í gær. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fannst nokkurt magn fíkniefna á öllum fjórum stöðunum, þar á meðal hvítt efni sem við fyrstu sýn virðist vera amfetamín en ekki er hægt að útiloka að sé umrætt PMMA. Efnið hefur verið sent Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræðum til greiningar. Hún getur tekið nokkurn tíma. Meira en tugur manna hefur verið handtekinn og yfirheyrður vegna rannsóknarinnar, meðal annars áðurnefndur Borgnesingur á laugardagskvöld. Síðdegis í gær hafði hins vegar öllum verið sleppt úr haldi. Heimildir Fréttablaðsins herma að mikil áhersla sé lögð á það að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu efnisins. Talsvert lögreglulið hafi unnið að því myrkranna á milli alla helgina og svo verði áfram á meðan af því er talin steðja hætta. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, segir lögreglu óttast mjög að meira af efninu sé í umferð. Hann segir ómögulegt að vita hvort innflytjendur og sölumenn efnisins viti sjálfir hversu hættulegt efnið er. „En maður ætlar svo sem engum að dreifa svona efnum vitandi að þau kunni að vera eitruð,“ segir hann. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um rannsóknina í gær.- sh, jss
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Fleiri fréttir Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Sjá meira