Gerðu eiturefnamælinguna eftir fyrirspurnir frá íbúum 4. janúar 2011 06:00 Mælingar í útblæstri árið 2009 sýndu að þungmálmarnir nikkel, arsen, blý, króm, kopar og vanadíum voru langt yfir mörkum. Ryk mældist þá rúmlega fimm sinnum meira en starfsleyfi kvað á um.mynd/halldór sveinbjörnsson
Fyrirspurnir íbúa á Ísafirði urðu til þess að Mjólkursamsalan (MS) á staðnum réðst í að gera mælingu á þrávirkum aðskotaefnum í afurðum. Mælingar og eftirlit á þrávirkum efnum í umhverfinu eru hins vegar á höndum opinberra eftirlitsstofnana en ekki fyrirtækja. Umhverfisráðuneytinu var tilkynnt um að díoxínmæling í sorpbrennslunni Funa væri tugfalt yfir mörkum. Eins og fram hefur komið í fréttum mældust þrávirk aðskotaefni, þar á meðal eiturefnið díoxín, yfir viðmiðunarmörkum í mjólk frá bæ í Skutulsfirði sem stendur um kílómetra frá sorpbrennslunni Funa. Í framhaldinu var vinnsla á mjólk á bænum og dreifing á afurðum sem rekja mátti þangað stöðvuð af öryggisástæðum. Einar Sigurðsson, forstjóri MS, segir að leitað hafi verið til fyrirtækisins um hvort mælingar hefðu verið gerðar á þrávirkum efnum í mjólk. „Við gerum fjöldann allan af mælingum á hverjum degi en mælingar eins og þessar eru ekki hluti af þeim. Það er annarra að sjá um þær. En við létum gera þessa mælingu af því að það kom upp þessi spurning frá íbúum. Það er stefna fyrirtækisins að eyða öllum slíkum vafa og niðurstaðan var nóg til þess að grípa til þessara aðgerða.“ Spurð hvort ekki hafi verið réttlætanlegt að svipta Funa vinnsluleyfi árið 2007 þegar vitað var að díoxín var tugfalt yfir viðmiðunarmörkum fyrir nýjar sorpbrennslur, segir Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, að hendur stofnunarinnar hafi verið bundnar. Ekki er getið um takmarkanir á díoxíni í útblæstri eldri sorpbrennslustöðva vegna undanþágu frá tilskipun Evrópusambandsins sem var innleidd 2003 og því hafi stofnunin engar heimildir til að svipta fyrirtæki starfsleyfi vegna þess. Kristín segir, eftir á séð, að sú ákvörðun að fá undanþágu fyrir díoxín hafi ef til vill verið misráðin af íslenskum stjórnvöldum. „Við létum umhverfisráðuneytið vita af þessum díoxínmælingum í lok árs 2008.“ Mælingar á útblæstri í Funa árið 2005 og 2007 sýndu að brennslan var þá í lagi, segir Kristín. „Hins vegar var brugðist við eftir að mælingarnar árið 2009 lágu fyrir,“ segir Kristín. Þá voru mælingar á ryki og þungmálmum í útblæstri langt yfir mörkum. Kristín viðurkennir að kannski hafi stofnunin sýnt of mikla þolinmæði. Hins vegar verði að gefa fyrirtækjum svigrúm áður en starfsemi þeirra sé aflögð. „En málið dróst vissulega mikið hjá sveitarfélaginu.“ Kristín segir að engar ákvarðanir hafi verið teknar um hvort sýni verði tekin úr fólki vegna díoxínmagns í útblæstri Funa. Ef af slíku yrði kæmu fleiri að þeirri ákvörðun. Umhverfisstofnun gekk hart fram gagnvart sveitarfélaginu allt síðasta ár. Í bréfi frá 16. desember segir að „ófullnægjandi mengunarvarnir Funa-sorpbrennslu sem hugsanlega hafa skaðleg áhrif á umhverfið og heilsu manna á svæðinu eru óásættanlegar að mati UST“. Kristín segir að stofnuninni hafi á þeim tíma verið ljóst að díoxín hefði mælst í mjólk frá Efri-Engidal. Áform stofnunarinnar um stöðvun á rekstri hafi hins vegar tengst mælingum á ryki og þungmálmum en stofnunin hafi tekið fréttir um díoxínmengun í mjólk mjög alvarlega. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur óskað eftir gögnum frá UST vegna málsins. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira