Helgi Hjörvar: „Þetta er erfitt með eins manns meirihluta“ 4. janúar 2011 10:26 Siv Friðleifsdóttir. „
Það hlýtur að vera ríkur vilji til þess að ljúka þeim leiðangri sem lagt var upp með í samstarfinu. Sérstaklega þar sem erfiðasti hlutinn er að baki. Nú hefst uppbyggingin, en það er erfitt með eins manns meirihluta," sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun, en þar var einnig rætt við Siv Friðleifsdóttur, þingmann Framsóknarflokksins. Siv sagði meðal annars að hún væri ekki sammála formanni sínum, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, varðandi þjóðstjórn. Þá var hún einnig ósammála því að það þyrfti að boða til kosninga á árinu. Siv telur að lýðræðinu verði best borgið með sterkri stjórnarandstöðu en ekki þjóðstjórn. Þá segir hún kosningar á þessu ári til þess fallnar að skapa óróa. Henni þykir það vondur kostur. Þá var Siv spurð út í meintar þreifingar stjórnarmeirihlutans við Framsókn. Meðal annars var hún spurð hvort það væri satt, sem hefur heyrst, að Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, hafi rætt við hana, Guðmund Steingrímsson og Birki Jón Jónsson, um að styðja við ríkisstjórnarsamstarfið. Siv sagði engan hafa rætt við sig. Þá tók hún oft fram að engar formlegar viðræður hefðu átt sér stað. Helgi Hjörvar segir róðurinn erfiðann. Spurð hvort hún ásamt Guðmundi og Birki Jóni væru að kljúfa sig frá Framsóknarflokknum sagði Siv ekki skynja það. Hún sagðist ekki finna fyrir því að það væru tvær fylkingar í flokknum og taldi þá drætti sem væru teiknaðir upp, væri vegna atkvæðagreiðslunnar um umsókn inn í ESB, þar sem þingmennirnir þrír greiddu atkvæði með frumvarpinu, en aðrir þingmenn Framsóknar gegn því. En bæði voru þau sammála um að ríkisstjórnarsamstarfið ætti í vandræðum. Helgi Hjörvar sagði of snemmt að ræða stöðuna inna stjórnarheimilisins, þá sérstaklega í ljósi þess að VG fundar á morgun með þremenningunum.„Við bíðum bara eftir því hvernig okkar samstarfsflokki gengur að vinna úr sínum málum," sagði Helgi á meðan Siv sagðist skynja mikinn óróa hjá VG.
Mest lesið Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Sjá meira