Innlent

Vilja ekki að áætlunarflug leggist af til Sauðárkróks

Aðalfundur Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi  hvetur samgönguyfirvöld eindregið til að beita sér fyrir þvi að áætlunarflug til Sauðárkróks verði ekki lagt af um áramót, eins og til stendur, með niðurfellingu ríkisstyrkja til flugsins. 

Þessi fyrirætlan sé ekki í samræmi við hið metnaðarfulla markaðsátak: Ísland allt árið, um að stór auka vetrarferðaþjónustu um land allt. Auk þess sé ríkisvaldið  með þessu að ganga á bak orða sinna um svonefnda sóknaráætlun 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×