Ólafur Ragnar seldi Neyðarkarlinn 3. nóvember 2011 18:21 Ólafur selur hér Magnúsi Gunnlaugssyni fyrsta Neyðarkarlinn. Mynd/Jón Svavarsson
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, hóf formlega sölu Neyðarkalls björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar í verslanamiðstöðinni Kringlunni síðdegis í dag. Fyrsta Neyðarkarlinn keypti Magnús Gunnlaugsson, sem á líf sitt björgunarsveitum að launa, eftir að bátur hans sökk norður af Akurey í mars á þessu ári. Félaga Magnúsar var einnig bjargað meðvitundarlausum og illa ofkældum úr sjónum og mátti ekki miklu muna að hann léti lífið. Forsetinn aðstoðaði björgunarsveitafólk við söluna í góða stund og seldi gestum og gangandi í Kringlunni fjölmarga Neyðarkalla. Neyðarkallinn verður seldur um land allt nú um helgina og hófst salan í dag, fimmtudag. Er þetta í sjötta sinn sem þessi fjáröflun fer fram og er hún orðin ein sú mikilvægasta fyrir björgunarsveitir landsins. „Afar mikilvægt er að vel takist til með söluna í ár þar sem björgunarsveitir hafa ekki farið varhluta af þeim tekjusamdrætti sem orðið hefur víðast hvar í þjóðfélaginu undanfarin ár. Á sama tíma hafa verkefnin verið ærin. Þrjú eldgos sem eru með stærri aðgerðum björgunarsveita frá stofnun þeirra og mikil aukning í ferðamennsku eru meðal þeirra aðstæðna sem hafa valdið sífellt fleiri útköllum sjálfboðaliðanna í sveitunum.,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörg.
Mest lesið Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Sæti Artúrs logar Erlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Erlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Innlent Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið Innlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Erlent Fleiri fréttir Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Sjá meira