Boxerhundar drápu á þriðja tug lamba og kinda 9. júní 2011 15:24
Tveir boxerhundar drápu á þriðja tug lamba og kinda í nágrenni Eyrarbakka. Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning um dýrbítana rétt fyrir hádegi í dag. Lömbin og kindurnar voru á túni bæjarins Þórðarkots. Bændurnir á bænum skutu hundana þegar upp komst um drápin, enda hafa bændur heimild til að skjota dýrbíta. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er staðfest að hundarnir drápu 23 kindur og lömb. Enn eru menn þó að leita á svæðinu sem er heldur víðfemt. „Þau voru mjög illa leikin, vægast sagt," segir lögreglumaður sem sinnir málinu um hræin. Hundarnir höfðu strokið frá eigendum sínum en óvíst er hversu lengi þeir voru að drepa sauðféð. Næstu skref lögreglu eru að yfirheyrahundaeigendurna, en samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru þeir að teknu tilliti til aðstæðna ekki ósáttir við að þeim hafi verið lógað. „Hundur sem bítur lamb, hann bítur aftur. Þegar þeir finna blóðbragðið vaknar villidýrið í þeim," segir lögreglumaðurinn. Búast má við að eigendur hundanna þurfi að greiða bændunum bætur vegna sauðfjárins sem þeir drápu, en lamb á fæti kostar um 25 þúsund krónur. Mögulegt er að aflífa þurfi fleiri lömb og kindur sem eru illa farin eftir árásina.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira