Jón Gnarr leitar að Reykvíkingi ársins 9. júní 2011 13:10 "Mig langar til að þakka þessu fólki,“ segir Jón Gnarr. Mynd/Arnþór Birkisson
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur leitar nú eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur til fyrirmyndar, en ábendingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins. Sá sem hlýtur nafnbótina fær meðal annars laxveiðidag í Elliðaánum með Jóni og frítt í sund. „Með því að veita árlega slík verðlaun á meðan ég er borgarstjóri hef ég hug á því að efla áhuga Reykvíkinga á því að gera eitthvað fyrir borgina sína og samborgara. Ég veit að það er fjölmargt fólk í Reykjavík sem er til fyrirmyndar, óeigingjarnt fólk sem er alltaf að hugsa um velferð borgarinnar og samborgara sinna. Mig langar til að þakka þessu fólki," segir Jón. Fram kemur í tilkynningu frá borginni að til greina komi aðeins einstaklingar, sem haia með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Þar segir að slíkur borgari gæti til dæmis verið einhver sem sannanlega haldi borginni hreinni með því að tína upp rusl á víðavangi eða einhver sem hafi með ólaunuðu framlagi sínu, djörfung og dug gert Reykjavíkurborg gott á undanförnum árum og haft jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt. Ábendingar skal senda ásamt rökstuðningi á netfangið hugmynd@reykjavik.is eða bréflega til skrifstofu borgarstjóra merkt Reykvíkingur ársins fyrir 15. júní 2011. Þriggja manna dómnefnd mun velja Reykvíking ársins úr innsendum tillögum og sá sem hlýtur nafnbótina fær meðal anns laxveiðidag í Elliðaánum með borgarstjóra, árskort í sundlaugar ÍTR, árskort í Fjölskyldu og húsdýragarðinn og Menningarkortið til eins árs.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Sjá meira