Yfir 2000 nauðungarsölur frá bankahruni Höskuldur Kári Schram skrifar 26. desember 2011 20:00
Rúmlega tvö þúsund og tvö hundruð fasteignir hafa verið seldar nauðungarsölu í Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík frá bankahruni. Fjöldinn hefur nærri fjórfaldast frá árunum fyrir hrun. Mikill fjöldi fasteigna hefur verið seldur nauðungarsölu á síðastliðnum þremur árum. Árið í fyrra var metár hvað þetta varðar en þá voru nauðungarsölur í Reykjavík svo dæmi sé tekið rúmlega fjögur hundruð og fimmtíu talsins eða helmingi fleiri miðað árið þar á undan. Samkvæmt upplýsingum frá sýslumönnum í Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík hafa rúmlega tvö þúsund og tvö hundruð fasteignir verið seldar nauðungarsölu í þeirra umdæmum frá ársbyrjun 2009 til loka nóvembermánaðar síðastliðins. Þetta er fjórföldun miðað við meðaltal áranna fyrir hrun. Ástandið er hvað verst í umdæmi sýslumannsins í Keflavík en þar hefur að meðaltali ein fasteign verið seld nauðungarsölu á hverjum einasta virka degi þessa árs. Skuldarar gátu á tímabili óskað eftir frestun á nauðungarsölu samkvæmt lögum sem alþingi setti árið 2009 en þau lög voru tímabundin og féllu úr gildi í lok mars á þessu ári. Lögin gerðu það að verkum að mikill þrýstingur myndaðist í kerfinu og því varð gríðarlega mikil aukning á nauðungarsölum á milli áranna 2009 og 2010. Í Keflavik og Hafnarfirði þrefaldaðist fjöldinn og í Reykjavík tvöfaldaðist hann.
Mest lesið Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Sjá meira