Apatow gæti bjargað Megan Fox 24. mars 2011 14:00 Megan Fox hefur ekki gert góða hluti á hvíta tjaldinu eftir að hafa verið sparkað út úr Transformers. Hún treystir á Judd Apatow.
Grínleikstjórinn Judd Apatow kann þá list að kitla hláturtaugar hins vestræna heims með kvikmyndum á borð við The 40 Year Old Virgin og Knocked Up. Og nú er leikstjórinn byrjaður á nýrri mynd. Ekkert hefur verið gefið út hver söguþráðurinn er en vefmiðlar hafa gert að því skóna að gifta parið úr Knocked Up, þau Paul Rudd og Leslie Mann, verði í aðalhlutverkum að þessu sinni. Apatow hefur haldið mikilli tryggð við sína leikara en samkvæmt Empire Online gæti hann leitað út fyrir þann hóp því sögusagnir eru á kreiki um að Megan Fox kunni að fá hlutverk í myndinni. Megan Fox sló eftirminnilega í gegn í kvikmyndinni Transformers 1 og 2 og virtist ætla að leggja heiminn að fótum sér. Hún lenti síðan upp á kant við leikstjórann Michael Bay og var hent út á götu. Fox taldi sig hafa ýmislegt annað til brunns að bera en að vera sæt í kringum vélmenni og ætlaði að nýta vinsældir sínar með kvikmyndinni Jonah Hex. Henni var slátrað af öllum og ekki berast betri fréttir af næstu kvikmynd hennar, Passion Play, því hún fer víst beint á DVD. Fox gæti því vel þegið smá hjálp við að endurreisa annars stuttan feril.
Mest lesið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Beckham á spítala Lífið Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Menning Fleiri fréttir Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Sjá meira