Robocop og Terminator í Bíó Paradís 24. mars 2011 15:00 vísindaskáldskapur Haukur Viðar hyggst kynna klassískar sci-fi myndir fyrir áhugasömum.Fréttablaðið/ „
Þetta eru myndir sem rosalega margir hafa séð í sjónvarpi en ekki í kvikmyndahúsi,“ segir Haukur Viðar Alfreðsson, formaður Sci-Fi klúbbsins Zardoz í Bíó Paradís. Klúbburinn var stofnaður fyrir skömmu og heldur fyrstu sýninguna á morgun. Þá verða sýndar kvikmyndirnar The Terminator frá 1984 og Robocop frá 1987 sem eru að sögn Hauks tvær af helstu Sci-Fi kvikmyndastórvirkjum níunda áratugarins. Hann segir myndirnar tvær höfða til ótrúlega stórs hóps. „Ekki bara til sci-fi ofurnörda,“ segir Haukur. „Mér fannst sterkur leikur að byrja á myndum sem fleiri hefðu mögulega áhuga á að sjá til að kynna klúbbinn fyrir fólki.“ Sci-Fi klúbburinn Zardoz er með mánaðarlegar sýningar í Bíó Paradís og ætlar að sýna alls konar myndir frá ýmsum tímabilum, bæði klassísk stórvirki sem og minna þekktar B-myndir. Sýningarnar eru síðasta föstudag hvers mánaðar. „Við ætlum ekki að horfa á Star Trek allan daginn,“ segir Haukur í léttum dúr. „Sci-Fi myndir eru alls konar. Þær leka oft inn í aðra flokka, eins og hasar og jafnvel hrylling. Ég býst við að þetta verði ekki bara sveittir karlmenn í Nexusbolum þó ég voni svo sannarlega að það verði eitthvað um þá. Þeir eru hjartanlega velkomnir.“ Miðasala gengur vel að sögn Hauks. Svo vel að sýningin hefur verið færð úr sal tvö í sal eitt. Miðasala fer fram í Bíó Paradís og á Midi.is.
Mest lesið Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Lífið Pöntuðu „perrapizzu“ með flugi frá Ísafirði Lífið „Fataskápurinn minn gerir ekki ráð fyrir sól“ Tíska og hönnun Cosby Show-stjarna látin Lífið Heimsfræg lesbía á leið til landsins Lífið Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Lífið Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai Lífið Stjörnulífið: „Hann er pabbi minn“ Lífið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Lífið „Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“ Lífið Fleiri fréttir Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Cosby Show-stjarna látin Pöntuðu „perrapizzu“ með flugi frá Ísafirði Heimsfræg lesbía á leið til landsins Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai Stjörnulífið: „Hann er pabbi minn“ „Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“ Ákváðu að vera um kyrrt á Englandi þegar Trump náði kjöri Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Sjá meira