Innlent

Leikskólastjóri: Börnin þjást vegna sameiningaráforma

Anna Margrét Ólafsdóttir er leikskólastjóri á Nóaborg. Í vikunni fékk hún tölvupóst frá borginni þar sem hún var beðin álits á hugsanlegri sameiningu Nóaborgar við leikskólann Klambra.

„Pósturinn var nánast skilaboð um að ég yrði kannski rekin bráðum. og það væri hugmynd uppi um að sameina minn leikskóla og öðrum leikstjóra. Eðlilega brá mér og vorkenndi mér í smá stund en síðan kom í ljós að flestir leikskólastjórar í Reykjavík fengu svipaðan póst og leið svipað og mér."

Anna skrifaði grein sem hún birti á Facebook. Þar lýsti hún viðbrögðum sínum við tölvupóstinum, sagði augu sín hafa fyllst af tárum enda leikskólinn hennar líf og ástríða. Hún segist hafa fengið mikil viðbrögð við greininni.

„Já, mjög mikil og í raun miklu meiri en ég bjóst við og hélt. Þetta var meira persónulegt en ég hef undantekningalaust fengið bara jákvæð viðbrögð og fólk lýst að það hafi sömu áhyggjur og ég, að það sé ekki nógu faglega að þessu staðið."

Boðað hefur verið til fundar á fimmtudag með leikskólastjórum og öðrum fagaðilum vegna málsins. Anna segir fyrirhugað samráð ekkert annað en sýndarleik.

„Ég mjög erfitt að sjá að svona fundur skili miklum árangri. Fólk er búið að fá þennan póst að það eigi að sameina hugsanlega og kannski. Og það fara auðvitað allir í að verja sinn skóla og mér finnst pínulítið eins og verið sé að etja fólki saman og fyrirfram hef ég ekki mikla trú á þessum fundi."

Anna segir fagmennsku ekki ráða ferðinni.

„Það er mjög erfitt að sjá fagmennskuna í þessu. Og í einlægni minni trúði ég því mjög lengi að þetta yrði gert faglega en ég er farin að efast núna og hef verulegar áhyggjur og mestar áhyggjur hef ég af börnunum í þessari stöðu. Starfið felst í því að vera í leik og starfi með börnunum. Og það gefur augaleið að næstu árin sem þetta ferli verður í gangi þá eru það fyrst og fremst börnin sem munu þjást."







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×