Innlent

Tveir kaflar samningsins líklega kláraðir á morgun

Stefán Haukur Jóhannesson segir fleiri kafla verða opnaða í desember. Fréttablaðið/anton
Stefán Haukur Jóhannesson segir fleiri kafla verða opnaða í desember. Fréttablaðið/anton
Búist er við að tveimur köflum í aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði lokað strax eftir að þeir verða opnaðir á ríkjaráðstefnu sambandsins á miðvikudag. Þetta segir Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands.

Um er að ræða kafla númer tvö, sem fjallar um frjálsa för fólks milli landa, og kafla númer sjö um hugverkarétt. „Þetta eru kaflar sem falla undir EES þannig að þetta er hluti af okkar innanlandslöggjöf og því lítið um að semja,“ útskýrir Stefán Haukur.

Hann segir að á næstu ríkjaráðstefnu í desember verði fleiri kaflar opnaðir. „Það verða væntanlega fleiri en þessir tveir sem við erum að opna núna en ég vil fara varlega í að tjá mig um fjöldann á meðan hann er ekki endanlega ákveðinn,“ segir Stefán.

Af köflunum 33 sem um er að tefla þykir ljóst að þeir sem snúast um sjávarútveg og landbúnað verði þyngstir. Hvenær má búast við að þeir verði opnaðir?

„Á þessu stigi vitum við það ekki,“ segir Stefán Haukur. „Við sjáum fram á að sjávarútvegskaflinn tefjist, ekki síst vegna þess að Evrópusambandið er sjálft að endurskoða sína sjávarútvegsstefnu og er að því er virðist ekki í stakk búið til að opna kaflann alveg í næstu framtíð.

Hvað landbúnaðarkaflann varðar þá fengum við svokallað opnunarviðmið og við munum ekki opna þann kafla fyrr en við höfum getað mætt því. Það er í skoðun þessa dagana hvernig við ætlum að nálgast það,“ segir Stefán Haukur. Þó sé ljóst að þessir tveir kaflar verði ekki opnaðir fyrir áramót. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×