Fortíðin lifnaði við á Íslandsviku í Sóltúni 18. október 2011 05:00 Ekkert var til sparað. Íbúar, starfsfólk og ættingjar tóku höndum saman og settu saman glæsilegar sýningar á öllum hæðum. Myndir/Starfsfólk Sóltúns „
Það er ótrúlega gefandi og gaman að bregða svona á leik," segir Anna Birna Jensdóttir, forstöðumaður Hjúkrunarheimilisins Sóltúns, þar sem Íslenskir dagar voru á dagskrá í síðustu viku. Sóltúnsheimilið var skreytt hátt og lágt með íslenskum munum. Ýmis þemu voru í gangi á hinum ýmsu hæðum og göngum. Til dæmis var Reykjavík fimmta áratugarins gerð skil á einum stað og Vestmannaeyjar voru í öndvegi á öðrum stað. Tónlistarfólk kom í heimsókn og íslensk matarmenning liðinna daga í hávegum höfð. Áður hafa meðal annars verið Franskir dagar og Tékkneskir dagar í Sóltúni sem gert hafa mikla lukku. „Það myndast samvinna milli íbúa, ættingja og okkar starfsfólksins. Það er alveg ótrúleg hugmyndaauðgi sem kemur frá fólki," segir Anna Birna. Meðalaldur íbúanna á Sóltúni er 84 til 85 ár. „Fólk kom með alls kyns leikföng og muni frá því að það var ungt og endurminningarnar streymdu fram. Það spruttu upp leiðbeiningar til okkar unga fólksins um það hvernig þessir hlutir voru notaðir og þetta hefur verið mjög gjöfult og skemmtilegt," segir forstöðumaðurinn. Rúsínan í pylsuendanum var maturinn sem var á boðstólum. Sá þáttur náði hátindi með hátíðarkvöldverði í lok íslensku daganna. „Við vorum með hefðbundinn íslenskan mat; til dæmis siginn fisk, saltfisk og gellur og sveskjufyllt lambalæri sem fólk hafði mikla ánægju af. Það var gamla góða bragðið sem fólkið mundi eftir. Síðan var fínerí eins og sérrífrómas," lýsir Anna Birna sem kveður þó sviðakjammana hafa slegið hvað rækilegast í gegn. „Fólkinu leiddist ekki að fá kjamma í hendurnar. Það var alveg upplifun að sjá hversu ánægt fólkið var," segir Anna Birna Jensdóttir. gar@frettabladid.isKjólar úr Reykjavík Sumar kvennanna eiga enn kjóla sem settu svip sinn á samkvæmislífið í höfuðborginni laust fyrir miðja síðustu öld.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira