Tæp 85% vilja heimila staðgöngumæðrun 22. janúar 2011 07:30 Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna vill heimila staðgöngumæðrun á Íslandi. Meirihlutinn vill þó að hún sé aðeins leyfð í velgjörðarskyni. Vinnuhópur telur lögleiðingu ótímabæra á þessu stigi.
Mikill meirihluti landsmanna vill að heimilt verði að nýta sér þjónustu staðgöngumæðra hér á landi, samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins. Alls vilja tæplega 24 prósent leyfa staðgöngumæðrun án skilyrða, samkvæmt könnuninni. Ríflega 61 prósent til viðbótar vill leyfa staðgöngumæðrun, en aðeins í velgjörðarskyni. Samtals vilja því um 85 prósent landsmanna breyta ákvæðum laga þar sem lagt er bann við staðgöngumæðrun hér á landi. Alls vilja um fimmtán prósent þeirra sem afstöðu tóku að staðgöngumæðrun verði áfram bönnuð. Heldur fleiri konur en karlar vilja leyfa staðgöngumæðrun, og yngra fólk er talsvert líklegra en þeir sem eldri eru til að vilja leyfa staðgöngumæðrun. Starfshópur um staðgöngumæðrun, sem þáverandi heilbrigðisráðherra setti á laggirnar í janúar 2009, komst að þeirri niðurstöðu að enn væri of mörgum spurningum ósvarað og taldi ótímabært að heimila staðgöngumæðrun hér á landi. Enn fremur mæltist hópurinn til þess að litið sé til nágrannalanda til samanburðar, en staðgöngumæðrun er ólögleg í öllum Norðurlandaríkjunum.Dr. Reynir Tómas Geirsson, verndari Staðgöngu, segir að þó svo að slíkar leiðir í tæknifrjóvgun yrðu leyfðar myndu einungis örfáar konur nýta sér úrræðið. Nýjar rannsóknir í legígræðslum bendi einnig til þess að þær verði framkvæmanlegar á þessu ári og muni það breyta miklu hvað varðar frjósemisvandamál þeirra kvenna sem annars myndu nýta sér staðgöngumæðrun. Hann fullyrðir einnig að fleiri íslensk hjón en þau sem eru nú stödd á Indlandi hafi nýtt sér þjónustu staðgöngumæðra. - bj, sv /
Mest lesið Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Innlent 70 prósent landsmanna hlynnt banni Innlent Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Innlent Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna Innlent Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Erlent Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Erlent Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Erlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Erlent Fleiri fréttir Samfélagsmiðlabann nýtur mikils stuðnings og flugeldasalan í fullum gangi Hægt að gefa hundum róandi og lyf til að gleyma um áramót Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna 70 prósent landsmanna hlynnt banni Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Tvö handtekin fyrir þjófnað og þrír fyrir sölu og dreifingu Stoltastur af veiðigjaldinu og telur aðrar skattabreytingar hafa lítil áhrif á heimilin Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Fylgi stjórnarflokkanna dalar Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Sjá meira