Nýja sjarmatröllið á skjánum 26. júní 2011 19:00 Mörg járn í eldinum Reynir Örn Þrastarson, matreiðslumaður, hefur starfað sem fyrirsæta í hjáverkum síðustu ellefu árin. fréttablaðið/pjetur
Reynir Örn Þrastarson byrjaði sem Lottó-þulur í janúar á þessu ári og þykir hafa staðið sig vel í því hlutverki. Hann er fyrirsæta, sölumaður og menntaður matreiðslumaður en slíkt þykir nokkuð óvenjulegur bakgrunnur fyrir fyrirsætustarfið. „Ég hitti Andreu Brabin á förnum vegi fyrir ellefu árum og hún lét mig hafa nafnspjaldið sitt. Þegar ég kom heim stakk ég því ofan í skúffu og gleymdi því. Svo rakst ég á það nokkru seinna og ákvað að hitta Andreu aftur. Þau hafa síðan hringt annað slagið og látið mig hafa verkefni,“ segir Reynir Örn. Reynir hefur setið fyrir í bæði innlendum og erlendum auglýsingum og hefur meðal annars leikið í sjónvarpsauglýsingu fyrir spænska bensínstöð. „Erlendu verkefnin eru skemmtilegust því þeim fylgir oft ferðalög út á land og svo sér enginn sem maður þekkir auglýsinguna.“ Hann viðurkennir að það hafi verið skrýtið að standa fyrir framan myndavélina í fyrstu. „Mér þótti það mjög óþægilegt og fékk hálfgerðan kjánahroll. En fyrst maður er að bjóða sig fram í svona verkefni þá verður maður að standa og falla með því.“ Reynir Örn starfar sem sölumaður á daginn og segir það sjaldan vandamál að fá frí úr vinnu til að komast í tökur. „Ég fæ yfirleitt góðan fyrirvara og get því búið þannig um hnútana að geta tekið mér frí frá vinnu. Ég hef grínast með það að ég sé aðeins í dagvinnunni svo mér leiðist ekki á daginn.“ Þegar Reynir er að lokum inntur eftir því hvort hann ætli að halda fyrirsætustarfinu áfram svarar hann játandi. „Ef fólk hefur áfram áhuga á að ráða gráskeggjaðan karl í vinnu.“ -sm
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira