Á tónlistahátíð með Streets 25. júní 2011 11:00 Retro Stefson spilaði á tónlistarhátíðinni INmusic í vikunni, en þar spilaði einnig hljómsveitin The Streets. Haraldur Ari, liðsmaður Retro Stefson, fékk mynd með Mike Skinner, söngvara The Streets.
Íslenska hljómsveitin Retro Stefson kom fram á tónlistarhátíðinni INmusic sem fram fór dagana 21. og 22. júní í Zagreb í Krótaíu. Á hátíðinni spiluðu tæplega 30 hljómsveitir en þar má meðal annars nefna stóru böndin Arcade Fire, Jamiroquai, Cypress Hill, The Streets og Grinderman, hljómsveit Nick Cave. Retro Stefson spilaði á miðvikudagskvöldið og sagði Haraldur Ari, liðsmaður hljómsveitarinnar, að mætingin hefði verið gríðarlega góð. Að tónleikum loknum rakst hljómsveitin svo á Mike Skinner úr bresku hljómsveitinni The Streets. „Við hittum söngvara The Streets og vorum svo í námunda við Nick Cave og Cypress Hill," sagði Haraldur Ari. Krakkarnir í Retro Stefson eru búsett í Berlín, en þau skrifuðu undir samning við útgáfurisann Universal í janúar og hafa verið að spila á hinum ýmsu hátíðum víðs vegar um Evrópu. „Við spilum á c/o pop í Köln um næstu helgi, en Gus Gus spilar líka á þeirri hátíð. Svo erum við að fara til Noregs að spila á hátíð sem heitir Trænafestival," segir Haraldur, en Ólöf Arnalds kemur einnig fram á hátíðinni í Noregi. Haraldur segir hljómsveitina annars hafa það gott í Berlín, þau séu að vinna að nýju efni sem vonandi fær að heyrast fljótlega. -ka
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira