Lífið

Jordan í erfiðum málum

Glamúr Það er ekki mikill glamúr yfir skilnaði Katie Price og Alex Reid, eins þekktasta fjölmiðlapars Bretlands. Price hefur nú leitað til þekkts skilnaðarlögfræðings.
NordicPhotos/Getty
Glamúr Það er ekki mikill glamúr yfir skilnaði Katie Price og Alex Reid, eins þekktasta fjölmiðlapars Bretlands. Price hefur nú leitað til þekkts skilnaðarlögfræðings. NordicPhotos/Getty
Ein frægasta glamúr­fyrirsæta Breta, Katie Price, gæti verið á leiðinni með skilnað sinn og bardagakappans Alex Reid fyrir dómstóla. Skilnaðurinn er forsíðufóður fyrir bresku blöðin. Eftir aðeins eitt ár í hjónabandi tilkynnti fyrirsætan Katie Price að hún hygðist skilja við bardagakappann Alex Reid. Reid þessi er fremur vafasamur klæðskiptingur sem hefur haft atvinnu af blandaðri bardagalist og var handtekinn, ef marka má breska blaðið The Sun, sumarið 2006 vegna gruns um innflutning á kókaíni. Þá fjallaði breska pressan ítarlega um grófa fullorðinsmynd þar sem Alex Reid sást leika í nauðgunaratriði. Allt varð brjálað í breskum blöðum þegar kvisaðist út að þau væru skilin og ekki versnaði ástandið hjá blöðunum þegar Reid neitaði að yfirgefa heimili þeirra nema Katie greiddi honum eina milljón punda. Sannkallaður fjölmiðla­sirkus myndaðist sem virðist engan endi ætla að taka. Price hefur nú leitað til skilnaðarlögfræðingsins Fionu Shackleton, sem sá einnig um skilnað hennar og André. Price hefur augljóslega áhyggjur af auði sínum og sagði í yfirlýsingu sinni, sem að sjálfsögðu var send fjölmiðlum, að Alex Reid hefði eingöngu verið á höttunum eftir peningum og frægð. Söguþráðurinn minnir óneitan­lega á raunveruleikaþáttaseríu eða lélega sápu því breskir fjölmiðlar halda því fram að Price hafi fyrir löngu verið búin að fá nóg af Reid og viljað skilnað. Og undir lokin hafi hún hræðst þráhyggju hans gagnvart sér og ekki séð neinn annan kost en að senda frá sér yfirlýsingu um skilnaðinn, án samráðs við Reid. The Sun hefur síðan eftir vinum bardagakappans að hann sé í sárum yfir skilnaðinum og að hann trúi því að Price hafi aldrei elskað sig. „Hún vildi bara hefna sín á Peter André, fyrrverandi eiginmanni sínum, og gera hann afbrýðisaman,“ hefur The Sun eftir nánum vini bardagakappans. André sá sig knúinn til að tjá sig um málið og sagðist hafa mestar áhyggjur af börnunum sínum tveim sem hann á með Katie Price. Breskir fjölmiðlar eru sannfærðir um að enn eigi eftir að hitna í kolunum í þessu máli. freyrgigja@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.