Færri einir í einkabíl - hjólareiðafólki fjölgar um helming 25. nóvember 2011 14:55
Færri keyra einir til og frá vinnu og skóla í Reykjavík en áður eða 61% - og börnum sem ganga í skólann fjölgar ef marka má niðurstöður nýrrar ferðamátakönnunar sem Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar hefur gert. Bílaumferð hefur dregist saman um 2,8% milli áranna 2011 og 2010. Spurt var: Með hvaða hætti fór barnið þitt/börnin þín í grunnskólann í morgun? 63% svarenda sögðu að barnið hefði farið fótgangandi en í fyrra svöruðu 61% sömu spurningu játandi. 9% sögðu að barnið hefði hjólað í skólann, 4% að það hefði farið með strætó eða skólabíl og 1% með öðrum hætti. Þá hefur hlutfall barna sem eru keyrð í skólann lækkað úr 34% á árinu 2007 í 22% á þessu ári.Færri einir í einkabíl Einnig var spurt í könnunin með hvaða hætti fólk ferðast að jafnaði til vinnu eða skóla á morgnana? Færri Reykvíkingar en áður eða 61% reyndust keyra sjálfir þessa leið. Aftur á móti voru fleiri en áður farþegar í bíl eða 8% en voru 4% árið 2010. Árið 2008 fóru hins vegar 73% til og frá vinnu eða skóla sem bílstjórar í einkabíl. Fleiri en áður fara til vinnu á hjóli eða 6% aðspurðra. Mikil aukning er í þeim hópi sem fara með strætó til vinnu eða skóla en það hlutfall hefur haldist í um 9% síðustu ár en var um 5% árið 2009. Færri konur en karlar keyra til vinnu. Karlarnir virðast aftur á móti hjóla mun oftar til vinnu en konur eða 8% karla en aðeins 3% kvenna – en konur ganga frekar til vinnu en karlar. Könnunin var gerð af Capacent-Gallup á tímabilinu 20. október til 3. nóvember 2011 og var svarhlutfall 61%.Umferðartalningar Nýjar niðurstöður úr umferðartalningum Umhverfis- og samgöngusviðs sýna að dregið hefur úr bílaumferð um 2,8% milli áranna 2011 og 2010. Bílaumferð í Reykjavík er nú svipuð og hún var á milli áranna 2003 og 2004. Þá sýna þessar sömu talningar að hjólandi vegfarendum hefur fjölgað um 50% á milli ára á þeim stöðum þar sem umferðatalning fer fram.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Fleiri fréttir Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Sjá meira