Innlent

Þrjú hundruð björgunarsveitarmenn á hádegi

Tjald frá rústabjörgunarsveitinni hefur verið sett upp og verður einskonar miðstöð björgunaraðgerða í dag.
Tjald frá rústabjörgunarsveitinni hefur verið sett upp og verður einskonar miðstöð björgunaraðgerða í dag. mynd úr safni
Búið er að kalla út björgunarsveitarmenn frá Austfjörðum og Akureyri til að fjölga í leiltarliðinu, sem í nótt hefur leitað að erlendum ferðamanni, sem er týndur annaðhvort á Fimmvörðuhálsi eða Mýrdalsjökli.

Leitarmenn verða orðnir hátt í 300 undir hádegi, ef maðurinn hefur ekki fundist fyrir þann tíma. Þá var stórt tjald frá íslensku rústabjörgunarsveitinni blásið upp á miðjum Fimmvörðuhálsi á tíunda tímanum, og þar verður einskonar miðstöð eða bækistöð björgunarmanna og þar geta þeir hvílt sig í skjóli og matast. Maðurinn, sem leiltað er að, hringdi í neyðarlínuna um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi. Hann sagðist vera orðinn kaldur og hrakinn og auk þess villtur, og bað um hjálp. Síðan rofnaði sambandið við hann og hefur ekki heyrst til hans síðan.

Þyrla frá Landhelgisgæslunni tekur þátt í leitinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×