Innlent

Áfram er kolófært um Þröskulda

Lítið er enn vitað um færð á Vestfjörðum eftir snjókomu og hvassviðri í nótt, nema hvað Þröskuldar, á milli Reykhólasveitar og Hólmavíkur, er kolófær.

Vestfiringar undrast að þessi nýjasti fjallvegur í vegakerfinu skuli lokast jafn oft og raun ber vitni, sérstaklega í ljósi þess að hann nær ekki nema upp í 370 metra yfir sjávarmál, þar sem hæst er.

Steingrímsfjarðarheiðin, þar skammt frá, fer hinsvegar upp í 440 metra, eða 70 metra hærra en Þröskuldar, en lokast ekki eins oft. Þar fóru til dæmis nokkrir bílar um í nótt, samkvæmt sjálfvirkum teljara Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×