Innlent

Ekki rétt að tala um laus pláss á leiksskólum - vantar fjármagn

Mynd/Vilhelm
Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, segir ekki rétt að tala um laus pláss á leikskólum þó þar séu ónýttir fermetrar. Staðreyndin sé sú að ekki sé til fjármagn til að borga fleira starfsfólki laun.

Oddný var gestur Kolbrúnar Björnsdóttur og Loga Bergmann Í bítinu í morgun þar sem þau ræddu meðal annars þá staðreynd að börn fædd árið 2010 fá ekki pláss á leikskólum borgarinnar á þessu ári þrátt fyrir að leikskólastjórar segist hafa laus pláss.

Oddný segir það skipta máli hvernig laus pláss eru skilgreind, og ekki sé hægt að segja að þau séu til staðar ef ekki er á leikskólunum nægt starfsfólk til að taka við fleiri börnum, þrátt fyrir að þar sé laust pláss í fermmetrum talið.

Oddný leggur áherslu á að engin stefnubreyting sé fólgin í því að börn fædd 2010 komist ekki inn á leikskólum borgarinnar í ár þar sem borgin hefur einsétt sér að koma öllum börnin inn árið sem þau verða 2ja ára.

Samkvæmt því eiga börn fædd í janúar 2010 ekki rétt á plássi fyrr en árið 2012, þegar þau um haustið verða tæplega þriggja ára gömul.

Að sögn Oddnýjar er þó ekki mikið álag á borgaryfirvöldum vegna þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×