Innlent

Tveggja ára festi fótinn milli ofns og veggs

Mynd tengist ekki fréttinni beint.
Mynd tengist ekki fréttinni beint.
Tíu ára stúlka var flutt á slysadeild eftir að hún datt úr rólu á leiksvæði við grunnskóla í borginni í hádeginu í gær. Um var að ræða svokallaða tveggja manna rólu en talið er að mun fleiri börn hafi verið í rólunni þegar óhappið varð. Stúlkan fann til í baki en ekki er vitað frekar um líðan hennar.

Um miðjan dag festi tæplega tveggja ára drengur fót á milli ofns og veggs í leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn náðu ekki að losa drenginn og kölluðu til lögreglu og slökkvilið en það voru starfsmenn frá þeim síðarnefndu sem björguðu drengnum þegar þeir losuðu ofninn frá veggnum. Drengnum varð ekki meint af.

Og í gærkvöld fékk eins árs stúlka skurð á höfuðið þegar hún datt heima hjá sér í austurborginni. Meiðslin eru ekki talin alvarleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×